Ađgerđir vegna erfiđrar stöđu íslenskra námsmanna erlendis.
Vegna ţeirra ađstćđna sem uppi eru í íslensku efnahagslífi, og međ hliđsjón af erfiđri stöđu margra námsmanna erlendis, hefur menntamálaráđherra ađ höfđu samráđi viđ Samband íslenskra námsmanna erlendis (SÍNE) og Lánasjóđ íslenskra námsmanna (LÍN) ákveđiđ ađ fallast á tillögur stjórnar LÍN er samţykktar voru á fundi í gćr, fimmtudag.
- Tillögurnar fela í sér eftirfarandi breytingar á reglum sjóđsins fyrir yfirstandandi skólaár, til hagsbóta fyrir íslenska nemendur erlendis og fjölskyldur ţeirra.
Aukalán vegna röskunar á högum lánţega erlendis
Hafi orđiđ ófyrirsjáanleg röskun á stöđu og högum lánţega viđ nám erlendis verđi heimilt ađ veita honum aukalán sem samsvarar framfćrslu allt ađ tveggja mánađa. Eftir sem áđur eigi lánţegar viđ nám á Íslandi rétt á sambćrilegu aukaláni sem samsvarar framfćrslu eins mánađar. Ţannig verđi tekiđ sérstakt tillit til ţess kostnađar sem fylgir ţví ađ búa fjarri fjölskyldu og heimahögum. Ţessi ráđstöfun er gerđ međ breytingu á grein 4.9. í úthlutunarreglum LÍN. Námsmenn ţurfa ađ sćkja sérstaklega um aukalán, en ţau eru ćtluđ ţeim sem eru í sárri neyđ og verđur hvert tilvik metiđ af stjórn sjóđsins.
Hćkkun á vaxtastyrk vegna aukins fjármagnskostnađar
Vaxtastyrkir eru ćtlađir til ađ mćta vaxtakostnađi námsmanna vegna yfirdráttarlána. Hér er um styrk ađ rćđa en ekki lán, sem greiddur er út međ námslánum. Vaxtastyrkur viđ útborgun lána verđi hćkkađur úr 250 kr. í 400 kr. fyrir hverja ECTS-einingu sem lokiđ er. Námsmađur sem lýkur fullu námi á skólaárinu fái ţannig styrk ađ fjárhćđ 24 ţús.kr. í stađ 15 ţús.kr. áđur. Ţessi ráđstöfun er gerđ međ breytingu á grein 4.11. í úthlutunarreglum LÍN.
Lćkkun tekjuskerđingar úr 10% í 5%
Viđ útreikning og afgreiđslu námslána ţeirra sem hefja lánshćft nám á vormisseri 2009 komi 5% í stađ 10% tekna til frádráttar. Tilgangur breytingarinnar er ađ auđvelda mönnum, t.d. vegna atvinnumissis, ađ hefja lánshćft nám á nćsta ári ţrátt fyrir háar tekjur áriđ 2008. Verđur greinum 4.2., 4.3., 4.5. og 4.6. í úthlutunarreglum LÍN breytt til ađ heimila ţetta.
Ný gengisviđmiđun á útreikningi lána til skiptinema
Í stađ ţess ađ útreikningur vegna námslána skiptinema skólaáriđ 2008-2009 miđist viđ gengiđ 1. júní 2008 verđur útreikningurinn miđađur viđ gengi 26. september 2008. Ađ öđru óbreyttu ţýđir ţetta um 23% hćkkun framfćrslulána til ţessa hóps miđađ viđ fyrri áćtlun. Alls er áćtlađ ađ 400-500 lánţegar stundi nám sem skiptinemar erlendis. Gerđ verđur breyting á grein 3.1.3. í úthlutunarreglum LÍN af ţessu tilefni.
Aukinn sveigjanleiki í endurgreiđslum námslána
Greiđendum í vanskilum og ţeim sem sjá fram á vanskil vegna tekjutengdra afborgana af námslánum sínum, međ gjalddaga 1. september 2008 eđa 1. nóvember 2008, verđur gefinn kostur á gera greiđslusamkomulag til ţriggja mánađa í stađ tveggja mánađa áđur gegn lágmarksinnborgun sem samsvarar 1/3 skuldar í stađ helmings áđur.
Tekiđ tillit til tekjutaps ţeirra sem greiđa af námslánum
Greiđendur námslána sem verđa fyrir 20-30% tekjufalli milli áranna 2008 og 2009 eigi kost á lćkkun tekjutengdrar afborgunar haustiđ 2009, og ţeir sem verđa fyrir tekjufalli umfram 30% geti fengiđ tekjutengdu afborgun ársins fellda niđur ađ fullu. Almennt er greiđendum námslána gert ađ greiđa 3,75%-4,75% af heildartekjum undangengis árs í afborganir af námslánum sínum. Međ breytingunni er leitast viđ ađ koma til móts viđ ţá sem verđa fyrir verulegum tekjumissi milli ára. Verđur ţetta gert međ breytingu á grein 7.4.2. í úthlutunarreglum LÍN.
Ţá er rétt ađ vekja athygli á ţví ađ stjórn LÍN samţykkti á fundi sínum í gćr ađ beina ţví til bankastofnana, í fyrsta lagi, ađ yfirdráttarheimildir lánţega LÍN í íslenskum krónum verđi endurskođađar međ tillliti til gengisţróunar og, í öđru lagi, ađ ekki verđi felldar niđur yfirdráttarheimildir í erlendri mynt.
Áćtlađ er ađ kostnađur vegna framangreindra breytinga muni verđa allt ađ 300 m.kr. á árinu 2009 og er taliđ ađ ţau útgjöld rúmist innan fjárheimilda sjóđsins.
Menntamálaráđuneytiđ, stjórn LÍN og samtök námsmanna munu áfram eiga samráđ til ađ tryggja afkomuöryggi og velferđ námsmanna og fjölskyldna ţeirra.

