Fréttatilkynningar

Staða skólameistara við Framhaldsskólann á Húsavík

28.4.2009

Framhaldsskólinn á Húsavík

Umsóknarfrestur um stöðu skólameistara við Framhaldsskólann á Húsavík rann út föstudaginn 24. apríl sl. Menntamálaráðuneyti bárust fjórar umsóknir um stöðuna.
Umsækjendur eru:

Dóra Ármannsdóttir, framhaldsskólakennari,
Erla Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri,
Laufey Petrea Magnúsdóttir, settur skólameistari og
Sigurgrímur Skúlason, sviðsstjóri.


Miðað er við að menntamálaráðherra skipi í stöðuna til fimm ára frá 1. nóvember nk., að fenginni umsögn hluteigandi skólanefndar, skv. 1. mgr. 6. gr. laga um framhaldsskóla, nr 92/2008 og sbr. lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996, með síðari breytingum.



Senda grein

Fréttatilkynningar




Tungumál


Flýtival



Þetta vefsvæði byggir á Eplica