Fréttatilkynningar
Unesco

Skipun heimsminjanefndar Íslands 2009 - 2013

Menntamálaráðherra hefur skipað heimsminjanefnd til næstu fjögurra ára. Nefndin er þannig skipuð:

  • Margrét Hallgrímsdóttir, forstöðumaður Þjóðminjasafns Íslands, formaður,
  • Kristín Huld Sigurðardóttir, forstöðumaður Fornleifaverndar ríkisins,
  • Lovísa Ásbjörnsdóttir, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun, tilnefnd af umhverfisráðuneyti,
  • Ragnheiður H. Þórarinsdóttir, sérfræðingur í menntamálaráðuneyti,
  • Sigurður Á. Þráinsson, sérfræðingur í umhverfisráðuneyti, tilnefndur af umhverfisráðuneyti.

Hlutverk nefndarinnar er að fylgja eftir heimsminjasamningi UNESCO fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Í því felst m.a. að gera tillögur til ríkisstjórnar um íslenska staði sem ættu heima á heimsminjaskrá UNESCO um menningar- og náttúruarfleifð heims og undirbúa tilnefningar íslenskra staða á heimsminjaskrána. Tveir íslenskir staðir eru nú á heimsminjaskrá UNESCO: Þingvellir og Surtsey.




Fréttatilkynningar




Tungumál


Flýtival



Þetta vefsvæði byggir á Eplica