Fréttatilkynningar

Mennta- og menningarmálaráðuneyti

2.10.2009

Mennta- og menningarmálaráðuneytið

Í samræmi við lög nr. 98/2009 breyttist heiti menntamálaráðuneytis í mennta- og menningarmálaráðuneyti, 1. október 2009.

Nokkur verkefni sem hafa verið á forræði forsætisráðuneytisins flytjast yfir í mennta- og menningarmálaráðuneytið. Má þar nefna:

  • Þjóðmenningarhús,
  • Minningarsafn Halldórs Laxnes á Gljúfrasteini,
  • Stafkirkjuna á Heimaey,
  • Þjóðveldisbæinn í Þjórsárdal,
  • Sjóð þjóðhátíðargjafar Norðmanna og
  • Grænlandssjóð.

Jafnframt mun ráðuneytið hafa umsjón með lögum um prentrétt sem áður var á forræði dómsmálaráðuneytis.

Senda grein

Fréttatilkynningar




Tungumál


Flýtival



Þetta vefsvæði byggir á Eplica