Dagur leikskólans 6. febrúar

Dagur leikskólans 6. febrúar 2010

25.1.2010

Ţann 6. febrúar n.k. er dagur leikskólans, en ţann dag áriđ 1950 stofnuđu frumkvöđlar leikskólakennara fyrstu samtök sín. Ţetta er ţriđja áriđ í röđ sem leikskólar halda daginn hátíđlegan. Daginn ber ađ ţessu sinni upp á laugardag og ţví er mćlst til ţess ađ honum verđi fagnađ í leikskólum föstudaginn 5. febrúar. Leikskólakennarar munu ţennan sama dag fagna 60 ára afmćli félagsins m.a. međ útgáfu veglegs afmćlisrits.

Dagur leikskólans er samstarfsverkefni Félags leikskólakennara, mennta-og menningarmálaráđuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Heimilis og skóla. Tilgangurinn er ađ auka jákvćđa umrćđu um leikskólann, vekja umrćđu um hlutverk leikskóla og starf leikskólakennara og kynna starfiđ út á viđ.

Leikskólakennarar og annađ starfsfólk leikskólanna, hafa á undanförnum árum, ásamt nemendum sínum gert daginn eftirminnilegan á margan hátt. Í fyrra var, svo dćmi séu tekin fariđ í „međmćlagöngur", foreldrum og velunnurum bođiđ í morgunmat og kaffi, vasaljós notuđ til ađ varpa ljósi á barniđ, haldnar myndlistar-og leiksýningar og mikiđ sungiđ eins og venja er í leikskólum. Leikskólakennarar eru sammála um ađ dagurinn sé í alla stađi skemmtileg tilbreyting og ákjósanleg leiđ til halda á lofti góđu starfi leikskólanna.

Viđ minnum á ađ á vef ráđuneytisins hćgt er ađ nálgast bćklinginn sem gefinn var út fyrsta áriđ sem dagurinn var haldinn.

Viđ bjóđum góđan dag, alla daga

  • Hrafnhildur Karlsdóttir
    Formađur kynningarnefndar Félags leikskólakennara
  • Sigríđur Lára Ásbergsdóttir
    Deildarstjóri í mennta-og menningarmálaráđuneyti
  • Svandís Ingimundardóttir
    Skólamálafulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga
  • Sjöfn Ţórđardóttir
    Formađur Heimilis og skóla


 

Share/Save/Bookmark