Fréttatilkynningar

Breytingar í mennta- og menningarmálaráðuneyti

28.1.2010

Mennta- og menningarmálaráðuneytið

Þann 1. febrúar verða þær breytingar í mennta- og menningarmálaráðuneyti að Sigtryggur Magnason lætur af störfum sem aðstoðarmaður ráðherra. Við starfinu tekur Elías Jón Guðjónsson sem hefur að undanförnu gegnt stöðu upplýsingafulltrúa í fjármálaráðuneytinu.
Elías Jón hefur starfað sem fjölmiðlafulltrúi fjármálaráðuneytisins frá júlí á síðasta ári en þar á undan sem blaðamaður. Hann var formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands og lærði stjórnmálafræði.

Senda grein

Fréttatilkynningar




Tungumál


Flýtival



Þetta vefsvæði byggir á Eplica