Fréttatilkynningar

Staða skólameistara við Borgarholtsskóla

6.5.2010

Borgarholtsskóli

Umsóknarfrestur um stöðu skólameistara við Borgarholtsskóla rann út mánudaginn 3. maí sl. Mennta- og menningarmálaráðuneyti bárust fjórtán umsóknir um stöðuna, frá fjórum konum og tíu körlum.

Umsækjendur eru:

  • Ari Halldórsson, kennslustjóri,
  • Ágústa Elín Ingþórsdóttir, sviðsstjóri,
  • Ársæll Guðmundsson, skólameistari Menntaskóla Borgarfjarðar,
  • Ásgrímur Angantýsson, málfarsráðunautur Ríkisútvarpsins,
  • Bryndís Sigurjónsdóttir, settur skólameistari Borgarholtsskóla,
  • Eyjólfur Bragason, stjórnsýslufræðingur,
  • Guðrún Ragnarsdóttir, kennslustjóri,
  • Helgi Einar Baldursson, framhaldsskólakennari,
  • Jakob Bragi Hannesson, framhaldsskólakennari,
  • Jóhannes Ágústsson, framhaldsskólakennari,
  • Kristín Jónsdóttir, forstöðumaður Endurmenntunar HÍ,
  • Magnús Ingólfsson, framhaldsskólakennari,
  • Magnús Ingvason, kennslustjóri,
  • Sigurður R. Guðjónsson, áfangastjóri.

Miðað er við að mennta- og menningarmálaráðherra skipi í stöðuna til fimm ára frá 1. ágúst nk., að fenginni umsögn hluteigandi skólanefndar, sbr. 1. mgr. 6. gr. laga um framhaldsskóla, nr. 92/2008 og lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996, með síðari breytingum.



Senda grein

Fréttatilkynningar




Tungumál


Flýtival



Þetta vefsvæði byggir á Eplica