Fréttatilkynningar

Tvær nýjar námskrár í listum

12.5.2010

Mennta- og menningarmálaráðherra heimsækir Myndlistaskólann í Reykjavík

Kynntar voru tvær nýjar námskrár fyrir tveggja ára diplómanám í teikningu og textíl þriðjudaginn 11. maí sl. í húsnæði Kraums hönnunarhúss að Aðalstræti 10. Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra var viðstödd kynninguna. Námskrárnar eru samstarfsverkefni Myndlistaskólans í Reykjavík og Tækniskólans og styrkt af starfsmenntaáætlun Evrópusambandsins. Fjölmargir listamenn og kennarar hafa tekið þátt í mótun námskránna, auk fyrirtækjanna CCP og STEINUNN. Námið er hugsað fyrir þá sem lokið hafa námi á listnámsbraut á framhaldsskólastigi og er skilgreint sem fjórða námsþrepið sem háskólum er heimilt að meta til diplómagráðu. Nú þegar er til sambærileg námsbraut í mótun og var athöfnin haldin þar sem til sýnis voru lokaverkefni nemenda í því námi. Ráðherra tók á móti námskránum og lýsti við það tækifæri ánægju með  þessar nýju námsbrautir og að þær væru áfangi á þeirri leið að þróa frekar framhaldsnám í listum hér á landi.

Senda grein


Fréttatilkynningar




Tungumál


Flýtival



Þetta vefsvæði byggir á Eplica