Fréttatilkynningar

Styrkir til sveitarfélaga vegna aukinnar þjónustu við langveik börn og börn með ADHD

28.10.2011

Velferðarráðuneyti auglýsir eftir umsóknum frá sveitarfélögum um styrki til verkefna sem ætlað er að efla stuðnings- og nærþjónustu við langveik börn og börn með ofvirkni og athyglisbrest. Styrkir verða veittir á grundvelli samstarfssamnings félags- og tryggingamálaráðuneytis, mennta- og menningarmálaráðuneytis, heilbrigðisráðuneytis og Sambands íslenskra sveitarfélaga, sem var undirritaður 4. desember 2009.

Sveitarfélög geta sótt um styrki vegna verkefna á eigin vegum eða sem unnin eru í samstarfi við einstaklinga eða félagasamtök. Nánari upplýsingar á vef velferðarráðuneytis.

Senda grein

Fréttatilkynningar




Tungumál


Flýtival



Þetta vefsvæði byggir á Eplica