Hoppa yfir valmynd
23. mars 2012 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Fagráð vegna eineltismála í grunnskólum hefur starfsemi

Mennta- og menningarmálaráðherra staðfesti þann 10. mars 2012 verklagsreglur um starfsemi fagráðs eineltismála í samræmi við reglugerð um  ábyrgð og skyldur  skólasamfélagsins  í grunnskólum.

Mennta- og menningarmálaráðherra staðfesti þann 10. mars 2012 verklagsreglur um starfsemi fagráðs eineltismála í samræmi við reglugerð nr. 1040/2011um  ábyrgð og skyldur  skólasamfélagsins  í grunnskólum. Ráðherra skipaði einnig í þriggja manna fagráð til eins árs; Arnheiði Gígju Guðmundsdóttur náms- og starfsráðgjafi, Pál Ólafsson félagsráðgjafa og Þórkötlu Aðalsteinsdóttur sálfræðing. Með fagráðinu starfaði Árni Guðmundsson, þáverandi verkefnisstjóri verkefnastjórnar um aðgerðir gegn einelti í skólum og á vinnustöðum.
Í reglugerðinni um ábyrgð og skyldur skólasamfélagsins, 7. gr segir eftirfarandi: „Foreldrar eða skólar geta óskað eftir aðstoð sérstaks fagráðs, sem starfar á ábyrgð mennta- og menningarmálaráðuneytis, ef ekki tekst að finna viðunandi lausn innan skóla eða sveitarfélags, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir og aðkomu sérfræðiþjónustu...“

Fagráðið hefur einkum tvíþætt hlutverk við meðferð mála, sem því berast. Í fyrsta lagi að leita að viðunandi niðurstöðu í málum með sáttum sé þess nokkur kostur og í öðru lagi  að úrskurða á grundvelli þeirra gagna og upplýsinga, sem fagráðinu hefur borist í viðkomandi máli.  Ef fagráðið telur að ekki liggi fyrir nægilega greinargóðar upplýsingar skal það leitast við að afla þeirra, annaðhvort með formlegum hætti eða með viðtölum við málsaðila. Úrskurðir fagráðsins eru ráðgefandi.Miklar væntingar eru bundnar við starfsemi fagráðs í eineltismálum í grunnskólum, sem muni nýtast til að finna úrlausn á erfiðum málum, sem ekki hefur tekist að leysa í nærsamfélaginu. Með samhentum kröftum allra aðila skólasamfélagsins, þ.e. starfsfólks skóla, nemenda foreldra  auk sérfræðiþjónustu sveitarfélaga, annarra stuðningsaðgerða og nú tilkomu sérstaks fagráðs, ættu að skapast enn betri skilyrði til að útrýma einelti úr samfélaginu. Einelti er ofbeldi og á ekki að fá að þrífast í skólum eða annars staðar í samfélaginu.

  • Einnig er hægt að senda póst til fagráðsins af síðunni gegneinelti.is

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum