Dreifibréf

Evrópskur tungumáladagur 26. september 2008

21.8.2008

Evrópski tungumáladagurinnMenntamálaráðuneytið hvetur skóla, aðrar fræðslustofnanir og hagsmunaaðila til að minnast Evrópsks tungumáladags hinn 26. september 2008 og vekja þannig með einhverjum hætti athygli á mikilvægi tungumálakunnáttu og símenntunar í tungumálum. Vakin er athygli á bæklingi með fjölmörgum hugmyndum að mögulegum verkefnum og aðgerðum á tungumáladeginum. Bæklinginn má nálgast á vef ráðuneytisins. Slóðin er www.menntamalaraduneyti.is/raduneyti/althjodlegt-samstarf eða menntagatt.is.Þar er einnig að finna frekari upplýsingar um tungumáladaginn. Jafnframt er bent á vef Evrópuráðsins vegna tungumáladagsins. Slóðin er www.coe.int/edl. Í ráðuneytinu má einnig nálgast íslenska útgáfu veggspjalds frá Evrópuráðinu.

Að frumkvæði Evrópuráðsins hefur tungumáladagsins verið minnst frá árinu 2001 með ýmsu móti í Evrópulöndum, þ.m.t. á Íslandi. Markmið Evrópska tungumáladagsins eru einkum eftirfarandi:

  • Vekja athygli á mikilvægi tungumálakunnáttu og fjölbreytts tungumálanáms til að auka fjöltyngi og skilning á ólíkri menningu þjóða
  • Stuðla að því að viðhalda fjölbreytileika tungumála og menningar í Evrópu
  • Hvetja til símenntunar í tungumálanámi, bæði innan skólakerfisins og utan þess.

Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna hefur einnig ákveðið að árið 2008 sé helgað tungumálum og falið UNESCO að sjá um framkvæmdina. Slagorð ársins er: Tungumál skipta máli. Frekari upplýsingar um verkefnið eru á slóðinni:http://portal.unesco.org/en

Tengiliður við verkefnið í menntamálaráðuneytinu er Guðni Olgeirsson, sími 545 9500, netfang: gudni.olgeirsson@mrn.stjr.is Þess er vænst að Evrópskur tungumáladagur 2008 hafi jákvæð áhrif á tungumálanám og tungumálakennslu og verði einstaklingum hvatning til símenntunar á því sviði.






Tungumál


Flýtival



Þetta vefsvæði byggir á Eplica