Dreifibréf

Tilkynnt um dagsetningar samræmdra könnunarprófa í 4., 7. og 10. bekk haustið 2009

24.2.2009

Til skólastjóra grunnskóla og skólanefnda

Í lögum um grunnskóla nr. 91/2008 er kveðið á um að samræmd könnunarpróf í íslensku og stærðfræði skuli lögð fyrir alla nemendur í 4. og 7. bekk grunnskóla. Jafnframt er kveðið á um að nemendur 10. bekkjar skuli á fyrri hluta skólaársins þreyta samræmd könnunarpróf í íslensku, ensku og stærðfræði.

Tilgangur samræmdra könnunarprófa í grunnskólum er m.a. að athuga, eftir því sem kostur er, að hvaða marki námsmarkmiðum aðalnámskrár í viðkomandi námsgrein eða námsþáttum hafi verið náð, vera leiðbeinandi um áherslur í kennslu fyrir einstaka nemendur og veita nemendum, foreldrum og skólum upplýsingar um námsárangur og námsstöðu nemenda.

Dagsetningar samræmdra könnunarprófa í 4., 7. og 10. bekk haustið 2009 verða sem hér segir:

10. bekkur

  • Íslenska mánudagur 14. september kl. 9.00-12.00
  • Enska þriðjudagur 15. september   kl. 9.00-12.00
  • Stærðfræði  miðvikudagur 16. september   kl. 9.00-12.00

4. og 7. bekkur

  • Íslenska   fimmtudagur 17. september   kl. 9.00-12.00
  • Stærðfræði  föstudagur 18. september   kl. 9.00-12.00
      

Ákvörðun um prófdaga samræmdra könnunarprófa haustið 2009 var tekin í samráði við Námsmatsstofnun  sem sér um framkvæmd prófanna. Reglugerð um fyrirkomulag og framkvæmd samræmdra könnunarprófa er væntanleg innan tíðar og verður aðgengileg á heimasíðu ráðuneytisins.

Gert verður eitt 20 mínútna hlé á próftímanum og verða upplýsingar um nákvæmari tímasetningar fyrir hvern árgang að finna í framkvæmdahefti og á vefsíðu Námsmatsstofnunar þegar nær dregur prófunum (www.namsmat.is).

 


 






Tungumál


Flýtival



Þetta vefsvæði byggir á Eplica