Notkun frjáls hugbúnađar í skólakerfinu

13.8.2009

Til framhaldsskóla

Menntamálaráđuneytiđ hefur í sumar í samstarfi viđ áhugafólk um frjálsan hugbúnađ á Íslandi hugađ ađ leiđum til ađ auka notkun frjáls hugbúnađar í skólakerfinu. Ástćđan er tvíţćtt, annars vegar sú ađ auka ţekkingu og fćrni nemenda ţegar kemur ađ upplýsingatćkni en einnig hefur reynsla einstakra skóla gefiđ til kynna ađ nokkur sparnađur náist ef skipt er yfir í frjálsan hugbúnađ.

Ljóst er ađ skólar eru komnir misjafnlega langt í ađ nýta frjálsan hugbúnađ. Ţví hefur menntamálaráđuneytiđ áhuga á ađ starfa međ skólunum ađ ţví ađ veita upplýsingar um og greiđa fyrir ađgengi ađ frjálsum og opnum hugbúnađi. Međal annars hefur ráđuneytiđ hug á ţví ađ skapa í samstarfi viđ Félag um stafrćnt frelsi miđlćga upplýsingaveitu sem auđveldar skólum ađ deila reynslu sinni og ţannig styrkja hver annan.

Í mars 2008 gáfu stjórnvöld út stefnu um frjálsan og opinn hugbúnađ (http://ut.is). Stefnan nćr til allra stofnana sem eru reknar fyrir opinbert fé. Í henni eru menntastofnanir hvattar til ađ stuđla ađ ţví ađ nemendur fái tćkifćri til ađ kynnast og nota frjálsan hugbúnađ til jafns viđ séreignarhugbúnađ.

Menntamálaráđuneytiđ vill hvetja menntastofnanir til ađ taka upp notkun á opnum og frjálsum hugbúnađi í meira mćli, ţannig má auka notkun upplýsingatćkni í námi og kennslu. Nemendur kynnast hugbúnađi sem ţeir geta nýtt sér til ađ auka námsafköst sín og kennarar geta nýtt upplýsingatćknina til ađ auka fjölbreytni kennsluađferđa.

Ef ţinn skóli hefur áhuga á ađ taka ţátt í ţessu starfi međ menntamálaráđuneytinu, vinsamlegast hafđu samband viđ Sigurbjörgu Jóhannesdóttur sérfrćđing á skrifstofu menntamála (sigurbjorg.johannesdottir@mrn.stjr.is).