Framhaldsdeild á Hvammstanga
Fjölbrautarskóli Norðurlands vestra og Húnaþing vestra undirrituðu samning um starfsemi framhaldsdeildar á Hvammstanga til ársloka 2015.
Mánudaginn 12. nóvember s.l. var undirritaður samningur á milli Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra og Húnaþings vestra um starfsemi framhaldsdeildar á Hvammstanga til ársloka 2015.
Dreifnám á Hvammstanga verður nú að veruleika á grundvelli sóknaráætlana landshluta og forgangsröðun Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi í þá veru. Um er að ræða tveggja ára bóklegt nám á framhaldsskólastigi með kennslu frá FNV í gegnum fjarfundabúnað, tölvusamskipti og námslotur á Sauðárkróki. Nemendur í dreifnámi fara í tvær námslotur á Sauðárkróki á hverri önn, viku í senn. Loturnar eru mikilvægur hluti af náminu, þá gefst nemendum tækifæri til þess að hitta kennara, fá verklega kennslu og stunda félagslíf.
Undanfarin ár hefur verið unnið að því að koma á dreifnámi í samstarfi við framhaldsskóla. Framhaldsdeildir eru nú starfræktar á Patreksfirði í samstarfi við Fjölbrautaskóla Snæfellinga (FSN), á Þórshöfn á Langanesi í samstarfi við Framhaldsskólann á Laugum (FL) og í Húnaþingi Vestra, Hvammstanga í samstarfi við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra. Fyrirliggjandi eru umsóknir frá Vopnafirði, Hólmavík, Blönduósi, Grindavík og úr Rangárvallasýslu.
Framhaldsskóladeildir bæta aðgengi að menntun og auka þjónustu í dreifðum byggðum. Er það ekki síst mikilvægt eftir hækkun sjálfræðisaldurs og að fræðsluskylda var lengd til 18 ára aldurs. Framfarir hafa orðið mjög miklar í upplýsingatækni og því eru slíkar deildir raunhæfur valkostur fyrir byggðalög sem liggja fjarri framhaldsskólum en eru með nemendafjölda sem gefa tilefni til að halda úti framhaldsskólanámi í heimabyggð. Hins vegar þarf að gæta sérstaklega að fjölbreytni í námsframboði.
Á myndinni eru Ingileif Oddsdóttir, Skúli Þórðarson, Katrín Jakobsdóttir og Jón Óskar Pétursson
Mynd: Aldís Olga Jóhannesdóttir, Norðanátt.is. Á vef Norðanáttar.is eru fleiri myndir ásamt umfjöllun