Hoppa yfir valmynd
30. apríl 2013 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Kynning á frumvarpi til laga um tónlistarskóla


Helsta markmið frumvarpsins er að sett verði ný heildarlög um starfsemi tónlistarskóla sem starfa samkvæmt frumvarpinu og um samskipti ríkis og sveitarfélaga í þeim efnum.

Eitt af stjórnarfrumvörpum mennta- og menningarmálaráðherra á þingmálaskrá ríkisstjórnar fyrir 141. löggjafarþing var frumvarp til laga um tónlistarskóla. Frumvarpið er byggt á tillögu nefndar um endurskoðun laga um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla, nr. 75/1985, sem kynnt var í opnu samráðsferli á vef mennta- og menningarmálaráðuneytisins frá 25. janúar til 6. febrúar 2013, þar sem almenningi var gefinn kostur á að senda inn athugasemdir eða ábendingar um efni frumvarpstillögunnar. Ábendingar bárust frá Félagi tónlistarskólakennara, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Samtökum tónlistarskólastjóra, skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar, Tónskóla Hörpunnar. Athugasemdir vörðuðu einkum þau ákvæði frumvarpsins sem snúa að ábyrgð sveitarfélaga á rekstri tónlistarskóla og ákvörðun framlags úr ríkissjóði til stuðnings tónlistarkennslu. Við undirbúning frumvarpsins hefur verið leitast við að taka tillit til allra gagnlegra ábendinga sem fram komu. Mennta- og menningarmálaráðherra auðnaðist ekki að leggja frumvarpið fram á 141. löggjafarþingi en sú útgáfa frumvarpsins sem undirbúin hafði verið fyrir þinglega meðferð er hér með kynnt á vef ráðuneytisins.

Aðdraganda endurskoðunar á lögum nr. 75/1985 má rekja til ársins 2003 þegar þáverandi menntamálaráðherra skipaði viðræðunefnd milli menntamálaráðuneytis og Sambands íslenskra sveitarfélaga um kostnaðarskiptingu og fyrirkomulag tónlistarkennslu á framhaldsskólastigi. Frumvarp til laga um tónlistarskóla var undirbúið af nefnd sem ráðherra skipaði í desember 2010. Í henni áttu sæti: Erna Guðrún Árnadóttir, sérfræðingur í mennta- og menningarmálaráðuneyti, Guðjón Bragason, sviðsstjóri hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Laufey Ólafsdóttir, deildarstjóri hjá Reykjavíkurborg, Sigrún Grendal Jóhannesdóttir, tónlistarskólakennari, Sigursveinn Magnússon, tónlistarskólastjóri og Sigurður Hjörtur Flosason, aðstoðartónlistarskólastjóri. Jón Vilberg Guðjónsson, skrifstofustjóra í mennta- og menningarmálaráðuneyti,var skipaður formaður nefndarinnar. Með nefndinni starfaði einnig Margrét Magnúsdóttir, lögfræðingur í ráðuneytinu.

Helsta markmið frumvarpsins er að sett verði ný heildarlög um starfsemi tónlistarskóla sem starfa samkvæmt frumvarpinu og um samskipti ríkis og sveitarfélaga í þeim efnum. Rekstur tónlistarskóla hefur fram til þessa verið valkvætt verkefni sveitarfélaga og felur tillaga nefndarinnar ekki í sér breytingu á því fyrirkomulagi. Í frumvarpinu er kveðið á um starfsemi tónlistarskóla með mun skýrari hætti en í gildandi lögum. Þá er sérstaklega mælt fyrir um að sjálfstætt starfandi tónlistarskólar eigi rétt á viðurkenningu ráðuneytis og gert ráð fyrir tilteknum lágmarkskröfum um efni þjónustusamnings milli slíkra skóla og sveitarfélaganna. Í frumvarpinu er lagt til að ríkissjóður veiti árlegt framlag í Jöfnunarsjóð sveitarfélaga sem  renna skal til  kennslukostnaðar að viðbættu álagi fyrir stjórnunarkostnað vegna mið- og framhaldsnáms í söng og framhaldsnáms í hljóðfæraleik.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum