Hoppa yfir valmynd
1. apríl 2014 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Örnefni og efling tónlistarnáms

Mennta- og menningarmálaráðherra mælir fyrir nýjum lögum á Alþingi

Illugi Gunnarsson mennta- menningarmálaráðherra mælti fyrir nýjum lögum um örnefni og um breytingar á ýmsum lögum vegna framlengingar á gildistíma samkomulags milli ríkis og sveitarfélaga um eflingu tónlistarnáms.

Gildandi lög um örnefni eru frá árinu 1953 og því var nauðsynlegt að endurskoða þau í ljósi breyttra búsetuhátta, mikillar fjölgunar lögbýla og annarra býla utan kaupstaða, kauptúna og þorpa. Mörg lögbýli hafa einnig lent innan sveitarfélaga með kaupstöðum, kauptúnum og þorpum við sameiningu sveitarfélaga. Þá var skrásetningarferli innan stjórnsýslunnar óskýrt, sem leiddi til þess að tiltekið misræmi hefur myndast á milli þinglýstra gagna og fasteignaskráningar.

Mælt er fyrir um að nafngiftahefðir séu í heiðri hafðar við myndun nýrra örnefna og að þau séu í samræmi við íslenska málfræði og málvenju. Í frumvarpinu er einnig mælt fyrir um að skýra skuli og samræma stjórnsýslu við skráningu örnefna svo að nafngiftir endurspegli sem best raunveruleikann hverju sinni þannig að endanleg nafngift komist á sem fyrst í ferlinu. Þá er ákvörðunarvaldið flutt nær almenningi með því að færa ábyrgð á nafngiftum og skráningu þeirra til sveitarfélaga í samræmi við nútímalegri stjórnunarhætti. Af nýmælum frumvarpsins má nefna:

    –     Mælt er fyrir um að samræma skuli opinbera skráningu örnefna og fasteigna í stjórnsýslunni.
    –     Sveitarfélögum er falin ábyrgð á nafngiftum staðfanga.
    –     Vegna öryggissjónarmiða eru skýrar reglur um skráningarferli og staðarvísun.
    –     Kveðið er á um nýjar almennar málsmeðferðarreglur örnefnanefndar.
    –     Málsmeðferð nafngifta nýrra náttúrufyrirbæra fest í lög.
    –     Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum fær ráðgefandi hlutverk um söfnun, skráningu og varðveislu örnefna, og nýjar nafngiftir.
    –     Örnefnagrunnur Landmælinga Íslands verði óháður mælikvarða. Hingað til hefur hann verið bundinn í lögum við mælikvarðann 1:50.000.
    –     Innihald örnefnagrunnsins verði aðgengilegt og endurnot hans án gjaldtöku.

Mennta- og menningarmálaráðherra mælti einnig fyrir frumvarpi til laga um breytingar á ýmsum lögum vegna samkomulags ríkis og sveitarfélaga um tímabundna breytingu á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga vegna framlengingar samkomulags um eflingu tónlistarnáms og jöfnun á aðstöðumun nemenda til tónlistarnáms

Frumvarpið felur í sér framlengingu á tímabundinni verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga vegna þátttöku ríkisins í kennslukostnaði í mið- og framhaldsnámi í söng og framhaldsnámi í hljóðfæraleik í samræmi við framlengt samkomulag ríkis og sveitarfélaga um eflingu tónlistarnáms og jöfnun á aðstöðumun nemenda til tónlistarnáms.


Frumvarp til laga um örnefni.

Frumvarp til laga um breytingar á ýmsum lögum vegna framlengingar á gildistíma samkomulags milli ríkis og sveitarfélaga um eflingu tónlistarnáms (gildistími bráðabirgðaákvæða o.fl.).

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum