Hoppa yfir valmynd
8. apríl 2014 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Nám í alþjóðlegum menntaskóla

Mennta- og menningarmálamálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um skólavist við Alþjóðlegan menntaskóla Rauða krossins (Red Cross Nordic United World College) í Flekke, Noregi.

Mennta- og menningarmálamálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um skólavist við Alþjóðlegan menntaskóla Rauða krossins (Red Cross Nordic United World College) í Flekke, Noregi.  Skólinn er rekinn sameiginlega af Norðurlöndunum í tengslum við Rauða krossinn. Nám við skólann tekur tvö ár og lýkur því með viðurkenndu alþjóðlegu stúdentsprófi, International Baccalaureat Diploma (IB). Kennsla fer fram á ensku.

Íslensk stjórnvöld eiga aðild að rekstri skólans og býðst skólavist fyrir einn nemanda. Umsækjandi þarf að hafa lokið einu ári í framhaldsskóla. Nánari upplýsingar má finna á vef skólans: http://www.uwc.org/

Auglýst er eftir umsækjendum um skólavist fyrir skólaárið 2014 - 2015. Umsækjendur skulu hafa lokið sem svarar einu ári í framhaldsskóla, hafa gott vald á ensku og vera á aldrinum 16-19 ára. Væntanlegur nemandi þarf sjálfur að greiða fargjöld og námsgögn.

Umsóknir berist mennta- og menningarmálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 101 Reykjavík, eða á netfnagið [email protected] í síðasta lagi 28. apríl næstkomandi. 

  • Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð eru á vef ráðuneytisins, menntamalaraduneyti.is. Nánari upplýsingar veita Þórir Ólafsson og Ásta María Reynisdóttir í síma 545 9500 eða í tölvupósti á [email protected], [email protected]
  • Umsóknarfrestur er til og með 28. apríl 2014.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum