Hoppa yfir valmynd
28. ágúst 2014 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Rannsóknaþing 2014

Helstu viðfangsefni þingsins verða umræður um úttekt á íslensku rannsókna- og nýsköpunarumhverfi og afhending Hvatningarverðlauna Vísinda- og tækniráðs

Rannsóknaþing 2014 verður haldið föstudaginn 29. ágúst á Hótel Hilton Reykjavík Nordica. Helstu viðfangsefni þingsins eru umræður um drög að skýrslu um úttekt á íslensku rannsókna- og nýsköpunarumhverfi og afhending Hvatningarverðlauna Vísinda- og tækniráðs.

Alþjóðlegir ráðgjafar hafa lagt jafningamat á stöðu vísinda, rannsókna og nýsköpunar á Íslandi. Á þinginu verða drög að niðurstöðum úttektarinnar til umfjöllunar og munu Francien Heijs og Arnold Verbeek kynna þau og í kjölfarið verða pallborðsumræður með þátttöku fundargesta.

Fundarstjóri: Hallgrímur Jónasson forstöðumaður Rannís

Dagskrá:

8:30  Opnunarávarp
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra og formaður Vísinda- og tækniráðs

8:40  Úttekt á íslensku rannsóknarumhverfi
Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra

8:50 Afhending Hvatningarverðlauna Vísinda- og tækniráðs
Fulltrúi dómnefndar gerir grein fyrir valinu. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra og formaður Vísinda- og tækniráðs afhendir Hvatningarverðlaunin 2014

9:20 Kynning á drögum að skýrslu jafningjahópsins
Francien Heijs, vísindaráðgjafi sendiráðs Hollands fyrir ESB og formaður jafningjahópsins, og Arnold Verbeek, sérfræðingur hjá IDEA Brussel, ráðgjafi og ritari jafningjahópsins kynna skýrsludrögin.

10:00 Viðbrögð úr íslensku rannsókna- og nýsköpunarsamfélagi. Pallborðsumræður

Þátttakendur:

  • Eyjólfur Guðmundsson rektor Háskólans á Akureyri
  • Erna Magnúsdóttir rannsóknasérfræðingur á heilbrigðisvísindasviði Háskóla Íslands
  • Unnur Brá Konráðsdóttir formaður allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis
  • Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir verkefnastjóri framkvæmdastjórnar Marel um rannsóknir og nýsköpun
  • Árni Snorrason forstjóri Veðurstofu Íslands.

Umræðustjóri: Ari Trausti Guðmundsson jarðeðlisfræðingur

Léttur morgunverður í boði fyrir gesti frá kl. 8:15

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum