Hoppa yfir valmynd
5. september 2014 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Öryggishandbók leikskóla

Handbókin er til stuðnings við gerð öryggishandbókar, öryggisáætlana og viðbragðsáætlana fyrir leikskóla.

Öryggishandbók leikskóla
OryggishandbokLeikskola

Handbókin er ætluð sveitarstjórnum, rekstraraðilum, skólastjórnendum, kennurum og öðrum sem starfa í leikskólum til stuðnings við gerð öryggishandbókar, öryggisáætlana og viðbragðsáætlana fyrir leikskóla. Handbókina má nýta í heild sinni eða nýta þá þætti sem henta hverju sinni. Mikilvægt er að í öryggishandbók fyrir starfsfólk leikskóla sé tæpt á öllum þeim þáttum sem koma fram í handbók þessari. 

Handbókin er fyrst og fremst ætluð sem uppflettirit til að auðvelda notendum að fylgja eftir þeim lögum og reglugerðum sem gilda um leikskólann og umhverfi hans.

Uppsetningu handbókarinnar er ætlað að auðvelda notendum að finna upplýsingar um hina mismunandi þætti sem taka á velferð og öryggi leikskólabarna. Markmiðið með handbókinni er að setja fram á aðgengilegan hátt upplýsingar um þá þætti sem huga þarf að í daglegum rekstri og starfi leikskóla.

Handbókinni er skipt í 10 meginkafla, hverjum meginkafla er síðan skipt í undirkafla til að auðvelda leit að sértækum þáttum. Meginkaflar handbókarinnar eru:

1.    Lög, reglugerðir og námskrár sem gilda um leikskóla

2.    Velferð barna, skólabragur einelti og önnur óæskileg hegðun

3.    Netöryggi

4.    Forvarnir og fræðsla

5.    Öryggi í námsumhverfinu

6.    Öryggi í ferðum á vegum leikskóla

7.     Eftirlit

8.    Slys

9.    Almannavarnir og eldvarnir

10.  Viðaukar

Handbókinni er ætlað að vera leiðarvísir fyrir þá aðila í skólasamfélaginu sem vinna að velferð nemenda og  byggir á efni sem Herdís Storgaard og Þorlákur Helgason unnu fyrir mennta- og menningarmálaráðuneyti.

Handbókin er unnin í samvinnu mennta- og menningarmálaráðuneytis og Sambands íslenskra sveitarfélaga með stoð í lögum um leikskóla nr. 90/2008 og reglugerð um starfsumhverfi leikskóla nr. 655/2009. Í reglugerðinni segir að sveitarstjórn skuli útbúa handbók fyrir starfsfólk leikskóla með leiðbeinandi reglum um öryggi barna og slysavarnir í leikskólum. Leiðbeiningar þessar skulu grundvallaðar á gildandi lögum og reglugerðum um öryggis-, skipulags- og byggingarmál og samræmdum starfsleyfisskilyrðum fyrir leikskóla, sbr. lög nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, með síðari breytingum. Leiðbeiningar þessar skulu staðfestar af sveitarstjórn sem jafnframt skal sjá um að þær séu aðgengilegar almenningi á heimasíðu skólans eða sveitarfélagsins eða með öðrum hætti og kynntar í skólasamfélaginu. Sambandi íslenskra sveitarfélaga og menntamálaráðuneyti ber að móta leiðbeiningar um gerð slíkrar handbókar. Handbókin er mun ítarlegri en reglugerðin segir til um og er það gert til að auðvelda sveitarfélögum og skólum að uppfylla ákvæði reglugerðarinnar.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum