Hoppa yfir valmynd
15. september 2014 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Norræn ráðstefna um nám og starfsþjálfun á vinnustöðum

Ráðstefnan verður haldin 25. september nk. í Eldborg í Svartsengi

Verkiðn í Kórnum Kópavogi mars 2014
Verkiðn í Kórnum Kópavogi mars 2014

Boðið er til ráðstefnu um tækifæri til náms- og starfsþjálfunar í atvinnulífinu fyrir fólk á öllum aldri. Ráðstefnan er liður í þátttöku Íslands í norræna verkefninu Sjálfbær norræn velferð. Umsjón með ráðstefnunni hafa velferðarráðuneytið, mennta- og menningarmálaráðuneytið og Vinnumálastofnun. 

Norrænn vinnumarkaður stendur frammi fyrir mörgum sameiginlegum úrlausnarefnum í kjölfar efnahagskreppu og vegna afleiðinga lýðfræðilegra breytinga. Það er forgangsmál að sporna gegn atvinnuleysi ungs fólks og virkja þá sem hætt er við útilokun frá þátttöku á vinnumarkaði og í samfélaginu. Langtímaatvinnuleysi og samspil mennta- og vinnumarkaðsmála er í brennidepli á formennskuári Íslands.

Á ráðstefnunni verður sjónum beint að þróun menntakerfisins og möguleikum þess til að tengjast betur fyrirtækjum og stofnunum með það að leiðarljósi að ungt fólk og atvinnuleitendur fái tækifæri til þess að fá þar þjálfun sem hluta af námi sínu. Jafnframt verður athygli beint að möguleikum atvinnuleitenda til starfsþjálfunar innan fyrirtækja eða stofnana sem hluta af starfsleitaráætlunum sínum. 

Gert er ráð fyrir að um 150 fulltrúar stjórnvalda, atvinnulífs og skóla, framhaldsfræðsluaðila, starfsendurhæfingar, nemenda, kennara og náms- og starfsráðgjafa frá Norðurlöndunum taki þátt í ráðstefnunni.

Skráning
Dagskrá

Upplýsingar um ráðstefnuna á sænsku og ensku

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum