Hoppa yfir valmynd
29. september 2014 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Erlendur Sveinsson  skipaður í embætti forstöðumanns Kvikmyndasafns Íslands

Erlendur er kvikmyndagerðarmaður og hefur komið að starfsemi Kvikmyndasafns Íslands um áratugaskeið.

Mennta- og menningarmálaráðherra hefur skipað Erlend Sveinsson í embætti forstöðumanns Kvikmyndasafns Íslands til fimm ára frá 1. október nk. að telja en hann var settur forstöðumaður safnsins árið 2012.

Erlendur er kvikmyndagerðarmaður og hefur komið að starfsemi Kvikmyndasafns Íslands um áratugaskeið sem stjórnarmaður, ráðgjafi og starfsmaður auk þess sem hann gegndi starfi forstöðumanns safnsins frá 1980 til 1986.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum