Menntun núna!
Ráðstefnur um íslenskukennslu og samfélagsaðlögun fyrir innflytjendur á Ísafirði og í Breiðholti í Reykjavík í tengslum við tilraunaverkefnið Menntun núna í Breiðholti og Norðvestur kjördæmi
Tilraunaverkefnið Menntun núna í Breiðholti og Norðvestur kjördæmi og Fjölmenningarsetur standa fyrir tveimur ráðstefnum á Ísafirði 8. október og í Breiðholti 10. október um íslenskunám og þátttöku innflytjenda í íslensku samfélagi. Á ráðstefnunni á Ísafirði verður sjónum beint að árangursríkum aðferðum við íslenskukennslu og samfélagslega aðlögun. Á ráðstefnunni í Gerðubegi 10. október verður m.a. leitað svara við spurningunni "Hvernig geta innflytjendur lært íslensku og auðgað íslenskt samfélagi?