Hoppa yfir valmynd
10. október 2014 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Styrkir til verkefna á sviði lista og menningar, menningararfs og til uppbyggingar landsmótsstaða

Samkvæmt ákvörðun Alþingis úthluta atvinnuvega og nýsköpunarráðuneyti, mennta- og menningarmálaráðuneyti, umhverfis- og auðlindaráðuneyti og velferðarráðuneyti styrkjum af safnliðum ráðuneytanna.  Styrkir eru veittir til félaga, samtaka, fyrirtækja eða einstaklinga eftir því sem við á hjá hverju ráðuneyti.
Umsóknarfrestur er til kl. 16:00 mánudaginn 10. nóvember 2014

Auglýst er eftir umsóknum
Umsóknarfrestur er til kl. 16:00 mánudaginn 10. nóvember 2014

Samkvæmt ákvörðun Alþingis úthluta atvinnuvega og nýsköpunarráðuneyti, mennta- og menningarmálaráðuneyti, umhverfis- og auðlindaráðuneyti og velferðarráðuneyti styrkjum af safnliðum ráðuneytanna.  Styrkir eru veittir til félaga, samtaka, fyrirtækja eða einstaklinga eftir því sem við á hjá hverju ráðuneyti.

Ráðuneytin munu einungis úthluta styrkjum til verkefna sem falla undir málefnasvið þeirra að svo miklu leyti sem þau njóta ekki lögbundis stuðnings eða falla ekki undir sjóði eða sérstaka samninga. Því er mikilvægt að umsækjendur kynni sér vel hvaða ráðuneyti ber ábyrgð á þeim málaflokki sem verkefni umsækjanda um styrk fellur undir.  Verkefni eru einungis styrkhæf í einu ráðuneyti og áskilja þau sér rétt til að færa umsóknir á milli ráðuneyta falli verkefni betur að málaflokki í öðru ráðuneyti.

Mat á umsóknum.
Starfshópur metur styrkhæfi umsókna og gildi þeirra fyrir verkefnasvið ráðuneytis almennt. Mat á umsóknum skal einkum byggjast á eftirtöldum sjónarmiðum eftir því sem við á:
a) gildi og mikilvægi verkefnis fyrir starfsemi viðkomandi málaflokks,
b) gildi og mikilvægi fyrir kynningu og markaðssetningu viðkomandi málaflokks,
c) að umsækjanda takist að ná þeim markmiðum sem verkefnið miðar að,
d) starfsferli og faglegum bakgrunni umsækjanda og annarra þátttakenda,
e) fjárhagsgrundvelli verkefnis og/eða hvort umsækjandi hafi hlotið aðra styrki til sama verkefnis.

Hafi umsækjandi áður fengið styrk til verkefnis þarf að liggja fyrir greinargerð um framkvæmd fyrra verkefnis og ráðstöfun styrkfjárins til að ný umsókn komi til greina eða eins og kveðið er á um í samkomulagi vegna fyrri styrkveitinga.
Við mat á umsóknum er starfshópnum heimilt að leita umsagnar fagaðila, gerist þess þörf.

  • Ákvörðun um úthlutun mun liggja fyrir eigi síðar en 31. janúar 2015.

Umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi á umsóknavef Stjórnarráðsins (http://minarsidur.stjr.is)

Aðgangur er veittur á kennitölu umsækjanda og verður lykilorð sent viðkomandi á netfang sem hann gefur upp við nýskráningu.

Lykilorðinu má breyta eftir innskráningu með því að opna Mínar stillingar. Umsækjendur skrá sig inn með kennitölu og lykilorði og velja mennta- og menningarmálaráðuneyti undir flipanum Eyðublöð.

Nánari upplýsingar veitir Ásta Ingólfsdóttir í síma 545 9520 eða í tölvupósti á [email protected]

Mennta- og menningarmálaráðuneyti veitir styrki til eftirtalinna málaflokka:

  • Styrkir á sviði lista og menningar
    Veitt eru framlög til félaga, samtaka og annarra aðila sem starfa á sviði lista og menningar og ekki hafa aðgang að menningarsamningum eða sjóðum.
  • Styrkir á sviði menningararfs
    Veitt eru framlög til félaga, samtaka og annarra aðila sem starfa að verndun menningarminja og ekki hafa aðgang að menningarsamningum eða sjóðum.
  • Styrkir til uppbyggingar landsmótsstaða
    Veitt eru framlög til að styðja við uppbyggingu, endurnýjun  og viðhalds íþróttamannvirkja og mannvirkja fyrir æskulýðsstarfsemi á landsmótssvæðum í samstarfi við sveitarfélög og fleiri aðila.

Ekki eru veittir styrkir til verkefna sem falla undir aðra málaflokka á verkefnasviði ráðuneytisins.

Sjá nánar hér

Styrkveitingar 2014

Styrkveitingar 2013

Styrkveitingar 2012




Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum