Brotthvarf úr framhaldsskólum á vorönn 2014
869 nemendur hættu námi án þess að ljúka prófum í lok vorannar 2014. Brot á skólareglum algengasta ástæðan
Undanfarin ár hefur mennta- og menningarmálaráðuneytið í samstarfi við framhaldsskólana beitt sér fyrir aðgerðum til að draga úr brotthvarfi. Aðgerðirnar snúa meðal annars að því að kalla eftir upplýsingum frá öllum framhaldsskólunum um ástæður nemenda fyrir brotthvarfi svo og að skima fyrir brotthvarfi í þeim skólum þar sem það hefur verið hvað mest. Byrjað var að skima fyrir brotthvarfi í þremur skólum í tilraunaskyni í byrjun árs 2013. Á haustönn 2013 var 14 skólum bætt við í verkefnið og nú í október 2014 verður skimað fyrir brotthvarfi í 18 framhaldsskólum.
Í skýrslu um Brotthvarf úr framhaldsskólum - Vor 2014 er byggt á niðurstöðum skráninga á uppgefnum ástæðum brotthvarfs frá þeim nemendum sem hættu námi áður en að lokaprófum kom á vorönn 2014. Verkefni af þessu tagi væri ekki framkvæmanlegt án góðrar samvinnu við þátttökuskólana.
Úrvinnsla gagna og helstu niðurstöður
Í upphafi vorannar 2014 var samræmt skráningablað sent til skólameistara allra framhaldsskóla á landinu. 30 skólar af 31 skiluðu inn niðurstöðum skráninga til ráðuneytisins í lok vorannar 2014. Viðmiðið var að nemandi hefði hafið nám á vorönn 2014 en ekki skilað sér í próf í lok annar. Líkt og á fyrri önnum var óskað eftir því líkt að haft yrði samband við alla nemendur sem hættu námi á önninni. Því er vert að taka fram að niðurstöður skráninga eiga ekki við um þá nemendur sem hættu námi á milli vor- og haustannar 2014.
Óskað eftir því að skráð yrði sérstaklega hvort móðurmál þeirra nemenda sem hættu væri annað en íslenska. Sjaldnast er ein ástæða sem liggur að baki því að nemendur hætta í námi en í þessari skráningu var þó beðið var um að skráð yrði ein ástæða hjá hverjum nemenda og var það lagt í hendur náms- og starfsráðgjafa skólanna, sem höfðu samband við nemendur eftir að þeir hættu, að meta hver væri meginástæða fyrir brotthvarfi hvers og eins. Ekki verða birtar upplýsingar um brotthvarf einstakra skóla, tegund náms eða skóla.
Í gögnunum kom fram að í skólunum 30 hefðu 869 nemendur, 497 karlar og 372 konur, hætt námi án þess að ljúka prófum í lok vorannar 2014. Í töflunni hér að neðan koma fram heildartölur og ástæður brotthvarfs flokkaðar eftir kyni.
Ástæður brotthvarfs - haust 2014 | Karl | Kona | Alls | Hlutfall af heild |
Fór að vinna | 68 | 27 | 95 | 11% |
Hætti vegna verkfalls í framhaldsskólum | 18 | 9 | 27 | 3% |
Flutningar | 8 | 12 | 20 | 2% |
Fjárhagsaðstæður | 12 | 4 | 16 | 2% |
Námsörðugleikar | 10 | 4 | 14 | 2% |
Fannst námið tilgangslaust/áhugaleysi | 34 | 24 | 58 | 7% |
Nám of erfitt | 12 | 7 | 19 | 2% |
Samskiptaörðugleikar við starfsfólk skóla | 1 | 1 | 2 | 0% |
Einelti | 0 | 0 | 0 | 0% |
Vísað úr skóla/brot á skólareglum | 157 | 90 | 247 | 28% |
Veikindi barna | 1 | 0 | 1 | 0% |
Fór í annan skóla | 38 | 40 | 78 | 9% |
Líkamleg veikindi | 15 | 26 | 41 | 5% |
Persónulegar ástæður | 24 | 27 | 51 | 6% |
Neysla/meðferð | 9 | 10 | 19 | 2% |
Andleg veikindi | 28 | 49 | 77 | 9% |
Annað | 62 | 42 | 104 | 12% |
Samtals | 497 | 372 | 869 | 100% |