Hoppa yfir valmynd
17. október 2014 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Opið samráðsferli um breytingar á lögum er varða frístundaheimili

Málefni frístundaheimila fyrir nemendur á grunnskólastigi.

Starfshópur um málefni frístundaheimila fyrir nemendur á grunnskólastigi hefur afhent mennta- og menningarmálaráðherra greinargerð ásamt tillögu að breytingu á 33. gr. laga um grunnskóla nr. 91/2008. Einnig fylgdi skýrsla með niðurstöðum könnunar um starfsemi frístundaheimila sem unnin var sl. vetur á vegum starfshópsins á frístundaheimilum og er aðgengileg á vef ráðuneytisins.

 Ráðherra stofnaði starfshópinn árið 2013 með  fulltrúum frá mennta- og menningarmálaráðuneyti, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Skólastjórafélagi Íslands, Heimili og skóla, Félagi fagfólks í frítímaþjónustu, Æskulýðsvettvanginum og Umboðsmanni barna til að athuga hvort þörf væri á að kveða með skýrari hætti á um starfsemi frístundaheimila fyrir nemendur á grunnskólastigi.  Vaxandi þrýstingur hefur verið frá hagsmunaaðilum um að sett verði viðmið um gæði þjónustunnar og hugað að lagaramma.

Tillagan fer nú í opið samráðsferli með birtingu á vef ráðuneytisins þar sem öllum gefst kostur að kynna sér efni hennar og skila inn athugasemdum og ábendingum til ráðuneytisins eigi síðar en 7. nóvember nk. á netfangið [email protected]



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum