Ný íþróttanefnd skipuð
Mennta- og menningarmálaráðherra hefur skipað í íþróttanefnd til næstu fjögurra ára
Mennta- og menningarmálaráðherra hefur skipað í íþróttanefnd til næstu fjögurra ára en skipunartími síðustu nefndar rann út 30. september sl. Hlutverk íþróttanefndar er að veita ráðuneytinu ráðgjöf í íþróttamálum og gera tillögur um fjárframlög til íþróttamála í fjárlögum og um úthlutun fjár úr Íþróttasjóði.
Íþróttanefnd verður þannig skipuð:
Stefán Konráðsson formaður, skipaður án tilnefningar,
Sigríður Jónsdóttir tilnefnd af stjórn Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands,
Björg Jakobsdóttir tilnefnd af stjórn Ungmennafélags Íslands,
Ingvar S. Jónsson tilnefndur af stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga,
Hafþór B. Guðmundsson tilnefndur af Menntavísindasviði Háskóla Íslands.
Varamenn eru:
Hafrún Kristjánsdóttir skipuð án tilnefningar,
Gunnar Bragason tilnefndur af stjórn Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands,
Örn Guðnason tilnefndur af stjórn Ungmennafélags Íslands,
Jóhanna M. Hjartardóttir tilnefnd af stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga,
Vanda Sigurgeirsdóttir tilnefnd af Menntavísindasviði Háskóla Íslands.