Hoppa yfir valmynd
2. desember 2014 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Menntunarstig þjóðarinnar hækkar

Þeim fækkar hlutfallslega sem eingöngu hafa lokið grunnmenntun samkvæmt rannsókn Hagstofunnar

Árið 2013 höfðu 45.400 manns á aldrinum 25-64 ára eingöngu lokið grunnmenntun, þ.e. styttra námi en framhaldsskólastigi, samkvæmt  niðurstöðum úr Vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands. Það eru 27,8% íbúa og hefur fækkað úr 34,4% árið 2003. Þegar litið er á fjöldatölur hefur íbúum með grunnmenntun fækkað um 3.800 frá árinu 2003 og um 1.700 frá árinu 2012. Þá höfðu 36,1% íbúa mest lokið starfs- og framhaldsmenntun, þ.e. lokið námi á framhaldsskólastigi sem er a.m.k. tvö ár að lengd eða lokið námi á viðbótarstigi, eða 58.900 manns. Álíka margir, 58.700 manns, höfðu lokið háskólanámi; 36,0% íbúa á Íslandi á þessu aldursbili. Háskólamenntuðum hefur fjölgað um 19.400 frá árinu 2003, þegar þeir voru 27,5% íbúa.

Mikill munur var á menntun íbúa höfuðborgarsvæðisins og landsbyggðarinnar árið 2013. Á höfuðborgarsvæðinu höfðu 22,7% íbúa á aldrinum 25-64 ára eingöngu lokið grunnmenntun en 42,3% höfðu lokið háskólamenntun. Utan höfuðborgarsvæðisins höfðu 37,0% íbúa eingöngu lokið grunnmenntun og 24,7% lokið háskólamenntun.

Hæsta menntun 25-64 ára 2013



  Alls Karlar Konur Höfuðborgarsvæði Landsbyggð
Grunnmenntun 27,8% 26,1% 29,6% 22,7% 37,0%
Framhaldsmenntun 36,1% 44,2% 27,9% 35,0% 38,2%
Háskólamenntun 36,0% 29,6% 42,5% 42,3% 24,7%
Alls 100,0% 100,0% 100,0% 100,0% 100,0%

 

(Tekið af vef Hagstofu Íslands)

Sjá nánar á vef Hagstofunnar

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum