Hoppa yfir valmynd
23. febrúar 2015 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Samráð um drög að frumvarpi til laga um breytingu á höfundalögum - verndartími hljóðrita

Mennta- og menningarmálaráðuneyti hefur lokið við drög frumvarpi til laga til að leiða í íslensk lög hluta af tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2011/77/ESB frá 27. september 2011 breytingu á tilskipun 2006/116/EB um verndartíma hljóðrita og tiltekinna skyldra réttinda.

 Frumvarpsdrögin fara nú í opið samráðsferli með birtingu á vef ráðuneytisins þar sem öllum gefst kostur að kynna sér efni þeirra og beina athugasemdum sínum og ábendingum til ráðuneytisins. Að því loknu verður farið yfir allar athugasemdir og þær hafðar til hliðsjónar við undirbúning endanlegs frumvarps, sem fyrirhugað er að ráðherra leggi fyrir Alþingi á 144. löggjafarþingi.

Veittur er frestur til að gera athugasemdir við drögin til og með 5. mars 2015. Óskað er eftir að athugasemdir verði settar skilmerkilega fram og með vísan til tiltekinna greina frumvarpsins, þegar það á við. Athugasemdir sendist í tölvupósti á [email protected] með efnislínunni: „Frumvarp til breytinga á höfundalögum - verndartími hljóðrita“.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum