Hoppa yfir valmynd
3. mars 2015 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Lýðræðisleg borgaravitund og mannréttindi

Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur látið þýða og gefa út fjórar bækur um menntun til lýðræðislegrar borgaravitundar og mannréttindamenntun.
thattakalitil

Útgáfan er liður í auðvelda innleiðingu á grunnþáttum menntunar en gert er ráð fyrir að nýta megi bækurnar í umfjöllun um alla grunnþættina og vinnu með lykilhæfni nemenda. Bækurnar eru samdar af Evrópuráðinu en þýddar og útgefnar af Námsgagnastofnun árið 2014. Þrjár bókanna innihalda nákvæmar leiðbeiningar og vinnublöð til dreifingar í verkefnavinnu nemenda í grunn- og framhaldsskólum. Ein bókin er sérstaklega ætluð fyrir kennara og fjallar hún m.a. um hvað beri að hafa í huga við nám, kennslu, innleiðingu og mat.

 Uppvöxtur í lýðræði - rafbók: inniheldur kennsluáætlanir og verkefni fyrir miðstig grunnskóla

Lifað í lýðræði - rafbók: inniheldur kennsluáætlanir og verkefni fyrir efri bekki grunnskóla

Þáttaka í lýðræði - rafbók: inniheldur kennsluáætlanir og verkefni fyrir framhaldsskólastig

Leiðir kennara til að efla menntun á sviði borgaravitundar og mannréttinda - rafbók

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum