Hoppa yfir valmynd
8. maí 2015 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Skipun starfshóps til að skoða og greina rekstur Ríkisútvarpsins

Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra, hefur skipað þriggja manna starfshóp sem ætlað er að skoða og greina rekstur Ríkisútvarpsins ohf. frá stofnun félagsins þann 1. apríl 2007.

Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra, hefur skipað þriggja manna starfshóp sem ætlað er að skoða og greina rekstur Ríkisútvarpsins ohf. frá stofnun félagsins þann 1. apríl 2007.
Markmiðið er að sú skoðun varpi ljósi á ástæður þess alvarlega rekstarvanda sem Ríkisútvarpið ohf. glímir nú við.
Eyþór Arnalds er formaður starfshópsins. Aðrir í hópnum eru þau Guðrún Ögmundsdóttir, starfsmaður í fjármálaráðuneytinu og Svanbjörn Thoroddsen ráðgjafi.
Þess er vænst að starfshópurinn skili niðurstöðum hið fyrsta og eigi síðar en 26. júní 2015.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum