Ársfundur Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra ávarpaði fundinn
Ársfundur Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum var haldinn í morgun.
Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra ávarpaði fundinn og gerði meðal annars að umtalsefni stöðu talsmálsins að hundrað árum liðnum í ljósi þeirrar bjartsýni fólks í upphafi tuttugustu aldar að íslenskan stæði allt af sér. Ráðherra taldi ástæðu til að hafa áhyggjur af þróun íslenskunnar og málstefna okkar ætti því fyllilega rétt á sér. Þá benti hann á mikilvægi þess starfs sem Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum innir af hendi, bæði fyrir íslenskt samfélag, og fyrir rannsóknir og varðveislu þess hluta menningararfs heimsins sem íslenskan er.
Í fundarboði sagði meðal annars: „Ný viðfangsefni kalla á nýjan orðaforða og á hverjum degi verða til ný orð sem fanga nýja hugsun og nýjar uppgötvanir. Á fundinum verður rætt um nauðsyn framsýnnar fjárfestingar í íslenskri máltækni og um uppbyggingu rafrænna innviða fyrir íslenska tungu. Íslenskan stendur frammi fyrir spennandi áskorunum í hinum stafræna heimi þar sem enskan hefur óneitanlega yfirburðastöðu. Smíða þarf traust þýðingatól, máltól og talgervla sem hægt er að nota í stýrikerfum, í spjaldtölvum og í snjallsímum“.
Undir liðnum „Íslenska verði nothæf og notuð á öllum sviðum“ voru flutt sjö erindi um stöðu tungumálsins nú á tímum örrar tækniþróunar og var athyglinni meðal annars beint að því mikla sköpunarstarfi sem fer fram í orðanefndum og hjá höfundum sérhæfðra orðasafna.