Hoppa yfir valmynd
3. júní 2015 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Gerum netið betra saman

Formaður heimilis og skóla, ásamt innanríkisráðherra, mennta- og menningarmálaráðherra og félags- og húsnæðismálaráðherra
Formaður heimilis og skóla, ásamt innanríkisráðherra, mennta- og menningarmálaráðherra og félags- og húsnæðismálaráðherra

Heimili og skóli – landssamtök foreldra, Rauði kross Íslands, Ríkislögreglustjóri og Barnaheill – Save the Children á Íslandi skrifuðu í dag undir samning við þrjú ráðuneyti mennta- og menningarmála, innanríkis og velferðarmála um stuðning við starfsemi SAFT verkefnisins til ársloka 2016. Samningurinn var undirritaður í Sjálandsskóla í Garðabæ, miðvikudaginn 3. júní 2015. Heimili og skóli munu stýra samstarfinu en samtökin hafa leitt verkefnið frá árinu 2004.
 
Samningurinn snýr að rekstri SAFT verkefnisins á Íslandi en markmið og viðfangsefni SAFT er að reka vakningarátak og fræðslu um örugga og jákvæða notkun netsins meðal barna og ungmenna, foreldra, kennara, fjölmiðla og þeirra sem starfa við upplýsingatækni.  Jafnframt að berjast gegn ólöglegu efni á netinu og að veita börnum og ungmennum aðstoð í gegnum hjálparlínu. Verkefnið er unnið í miklu samstarfi við Norðurlöndin og er einnig starfrækt sem Aðstandendur SAFT verkefnisinshluti af netöryggisþætti samgönguáætlunar Evrópusambandsins sem nær til allra landa á evrópska efnahagssvæðinu. Þrjú verkefni sameinast í SAFT: hjálparlína, ábendingalína og vakningarátak.
 
Öflugt starf er unnið á vegum SAFT á sviði forvarna og fræðslu og kannanir sýna fram á góðan árangur verkefnisins á Íslandi og aukna vitundarvakningu um öryggi í netnotkun. Ungmennaráð SAFT hefur einnig vakið athygli fyrir vasklega framgöngu, meðal annars í jafningjafræðslu um land allt. Á þennan hátt hefur SAFT-verkefnið haft frumkvæði að því að mynda samráðsvettvang um Netið á Íslandi.
 

Meðal helstu verkefna SAFT sem unnin verða á næsta verktímabili eru:

  • Ný SAFT könnun þar sem lögð er áhersla á að kortleggja netnotkun barna og unglinga, þ.m.t. notkun spjaldtölva og farsíma. Slík könnun var fyrst framkvæmd árið 2003, svo aftur 2007, 2009 og 2013.
  • Vinna og kynna kennsluefni þar sem fjallað er um rafrænt einelti og ábyrga og jákvæða notkun netsins.
  • Vinna kennsluefni og heilræði til uppalenda tengd hatursorðræðu á netinu í samstarfi við önnur Norðurlönd. Einnig mun SAFT útbúa kennsluefni og heilræði til uppalenda er varða miðlalæsi í norrænu samstarfi.
  • Ungmennaráð mun áfram sinna jafningjafræðslu um land allt og öflugt fyrirlestrarteymi SAFT tekur að sér að halda fræðsluerindi fyrir foreldra, kennara, skólastjórnendur og aðra.
  • Áfram verður markvisst unnið að því að kynna ábendingahnapp/ábendingalínu og tryggja þannig að allir landsmenn þekki með hvaða hætti er hægt að tilkynna óviðeigandi og ólöglegt efni á netinu. Barnaheill og Ríkislögreglustjóri veita þessum verkhluta forstöðu.
  • Ráðgjafarlína verkefnisins verður opin alla daga vikunnar og allan sólarhringinn en það er nú mögulegt með þátttöku sjálfboðaliða hjálparlínu 1717 hjá Rauða krossinum.
  • Fram til þessa hefur verkefnið árlega dreift um land allt fræðsluefni á öll þrjú stig grunnskóla, án endurgjalds, og mun sú vinna halda áfram.

Aðstandendur SAFT verkefnisins fagna þessum samningi og vænta ánægju og árangurs af þessu víðtæka og metnaðarfulla samstarfi stjórnvalda og grasrótarinnar. Nánari upplýsingar má finna á vef SAFT: www.saft.is

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum