Hoppa yfir valmynd
5. júní 2015 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Skýrsla og ályktun um stöðu íslensks táknmáls

Málnefnd um íslenskt táknmál hefur sent reglulega frá sér ályktanir um stöðu táknmálsins og fleira er það varðar ásamt skýrslu.

Taknmal

Alþingi samþykkti lög um stöðu íslenskrar tungu og íslensks táknmáls 7. júní 2011. Í þeim er m.a. kveðið á um að íslenska táknmálið sé fyrsta mál þeirra sem þurfa að reiða sig á það til tjáningar og samskipta. Var það mikill sigur fyrir málsamfélag táknmálstalandi og er 7. júní því hátíðardagur í hugum margra. 

Málnefnd um íslenskt táknmál hefur sent reglulega frá sér ályktanir um stöðu táknmálsins og fleira er það varðar ásamt skýrslu.

Í lögunum er kveðið á um að ríki og sveitarfélög skuli tryggja að allir sem þess þurfa eigi kost á þjónustu á íslensku táknmáli. Þar segir einnig að ríki og sveitarfélög beri ábyrgð á því að varðveita íslenskt táknmál, þróa það og stuðla að notkun þess. 

Í Málnefnd um íslenskt táknmál eru:

  • Valgerður Stefánsdóttir formaður
  • Ari Páll Kristinsson varaformaður
  • Heiðdís Dögg Eiríksdóttir
  • Hjördís Anna Haraldsdóttir
  • Rannveig Sverrisdóttir

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum