Hoppa yfir valmynd
28. ágúst 2015 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Kröftug þátttaka íslenskra skóla og stofnana í Nordplus menntaáætluninni

Úthlutun styrkja í Nordplus menntaáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar 2015 er lokið og hlutu 29 íslensk verkefni styrki

NP_rammeprgr_logo

Alls bárust 605 umsóknir frá öllum Norðurlöndunum og Eystrasaltsríkjunum og hlutu 410 umsóknir brautargengi með styrkum, samtals að fjárhæð 10 milljónir evra. Þátttaka Íslands var sem fyrr mjög góð, en 29 íslensk verkefni hlutu styrki (7% styrktra verkefna) og er heildarfjárhæð þeirra styrka eru 744.465 evrur (tæplega 109 milljónir króna) . Þátttaka íslenskra stofnana sem samstarfsaðilar er einnig mjög mikil. Dæmi um íslensk verkefni sem hlutu styrk eru m.a. Norrænn tónlistarkennslugagnagrunnur (stýrt af samtökum Orff tónmennt á Íslandi), samstarfsverkefni Tækniskólans og skóla í Noregi um skipstjóranám og námsheimsókn starfsmanna Hins Hússins til Danmerkur.

Nordplus styrkir menntasamstarf á Norðurlöndum og Eystrasaltsríkjunum. Ýmsar tegundir styrkja eru í boðið fyrir kennara, nemendur og stofnanir / fyrirtæki sem starfa við menntamál. Almennur umsóknarfrestur er 1. mars ár hvert, en einnig hægt er að sækja um styrk til undirbúningsheimsókna í tilteknum áætlunum 1. október ár hvert. Vakin er athygli á því að til  1. október 2015 verður einnig aukaumsóknarfrestur í Nordplus - norrænu tungumálaáætluninni (Nordplus nordiske sprog).

Nánari upplýsingar um þessa umsóknarlotu eru á heimasíðu Nordplus.  Þar eru einnig skýrslur og greinagerðir um eldri verkefni Nordplus.

Landskrifstofa Nordplus á Íslandi er hjá Rannís. Upplýsingar um áætlunina www.nordplus.is.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum