Heimsókn í Krikaskóla á alþjóðlegum degi læsis
Illugi Gunnarsson heimsótti Krikaskóla í Mosfellsbæ og ávarpaði fræðslufund Félags íslenskra sérkennara,
sem haldinn var í Árbæjarskóla
Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra heimsótti Krikaskóla í Mosfellsbæ og ræddi við starfsfólk og nemendur. Krikaskóli hefur vakið athygli fyrir góðan árangur m.a. í lestrarkennslu. Ingó kom með gítarinn og söng fyrir - og með - börnunum, "Það er gott að lesa" og fleiri lög.
Frá Krikaskóla lá leiðin á fræðslufund Félags sérkennara sem haldinn var í Árbæjarskóla. Ráðherra ávarpaði fundinn og ræddi við kennarana um lestrarmálin.