Hoppa yfir valmynd
1. október 2015 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Breytingar á aðalnámskrá grunnskóla og greinasviðum

Birt hefur verið auglýsing um breytingu á aðalnámskrá grunnskóla og greinasviðum með aðalnámskrá grunnskóla.

AUGLÝSING

um breytingu á aðalnámskrá grunnskóla og greinasviðum með aðalnámskrá grunnskóla.

1. gr.

Með vísan til 24. og 25. gr. laga um grunnskóla, nr. 91/2008, með áorðnum breytingum, staðfestir mennta- og menningarmálaráðherra hér með eftirfarandi breytingar á aðalnámskrá grunnskóla og greinasviða með aðalnámskrá grunnskóla:

a. Í stað kafla 9.4. Viðmið um námsmat í grunnskóla og kafla 9.5. Tengsl við hæfniþrep í framhaldsskóla í aðalnámskrá grunnskóla, sbr. auglýsingu nr. 760/2011, koma nýir kaflar með sama heiti, sem birtir eru sem fylgiskjal með auglýsingu þessari.

b. Í stað kafla 18.4. Matsviðmið í lykilhæfni við lok grunnskóla í greinasviðum aðalnámskrár grunnskóla, sbr. auglýsingu nr. 364/2013, kemur nýr kafli með sama heiti, sem birtur er á heimasíðu mennta- og menningarmálaráðuneytis.

2. gr.

Auglýsing þessi öðlast þegar gildi.

Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, 9. september 2015.

Illugi Gunnarsson.

Ásta Magnúsdóttir.

Kaflar 9.4 og 9.5 eftir breytingar 9. september 2015

Kafli 18.4 eftir breytingu 9. september 2015

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum