Æskulýðsráð

Æskulýðsráð

Æskulýðsráð starfar samkvæmt æskulýðslögum nr. 70/2007.

Hlutverk Æskulýðsráðs er:

  1. Að vera stjórnvöldum til ráðgjafar í æskulýðsmálum.
  2. Að gera tillögur um áherslur og stefnumótun í málaflokknum.
  3. Að veita umsagnir um mál er varða æskulýðsstarfsemi.
  4. Að leitast við að efla æskulýðsstarfsemi félaga, félagasamtaka, skóla og sveitarfélaga og stuðla að samvinnu þessara aðila um æskulýðsmál.
  5. Að efna til funda og ráðstefna um æskulýðsmál.
  6. Að taka þátt í erlendu samstarfi um æskulýðsmál eftir nánari ákvörðun ráðherra.
  7. Að stuðla að þjálfun og menntun forustufólks, leiðbeinenda og sjálfboðaliða.
  8. Að sinna öðrum þeim verkefnum sem ráðherra kann að fela því.

Ráðherra er heimilt að setja nánari reglur um starfsemi Æskulýðsráðs.

Kostnaður við störf og verkefni Æskulýðsráðs skal greiddur úr ríkissjóði.


Æskulýðsráð er skipað til tveggja ára í senn. Í Æskulýðsráði sitja fyrir tímabilið 1. janúar 2011 til 31. desember 2012 eftirtaldir aðilar.

Æskulýðsráð 2011-2012

  • Óskar Dýrmundur Ólafsson
  • Eyrún Ósk Jónsdóttir
  • Áslaug Björgvinsdóttir
  • Eyrún Harpa Hlynsdóttir
  • Jón Þorsteinn Sigurðsson
  • Sindri Snær Einarsson
  • Stefán Bogi Sveinsson
  • Margrét Sigurðardóttir
  • Björn Bjarki Þorsteinsson



Tungumál


Flýtival



Þetta vefsvæði byggir á Eplica