Með norræna skólahlaupinu er leitast við að hvetja nemendur, kennara og annað starfslið skólanna til þess að æfa hlaup og auka við hreyfingu sína. Lögð er áhersla á að kynna nauðsyn þess að hreyfa sig og reyna á líkama sinn á ýmsan hátt og stuðla þannig að betri heilsu og vellíðan. Keppt er að því fyrst og fremst að sem flestir, helst allir, verði með í hlaupinu í hverjum skóla. Að þessu sinni hlupu allir nemendur níu skóla.
Lesa meira