Nefndir
Nefndir
Íþróttanefnd ríkisins 2010-2014
Samkvæmt íþróttalögum 64/1998 þá skipar menntamálaráðherra íþróttanefnd en í henni eiga fimm menn sæti. Ráðherra skipar formann án tilnefningar, einn fulltrúa samkvæmt tillögu stjórnar Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, einn samkvæmt tillögu stjórnar Ungmennafélags Íslands, einn samkvæmt tillögu stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga og einn samkvæmt tillögu íþróttakennaraskorar Kennaraháskóla Íslands. Á sama hátt eru varamenn skipaðir. Nefndin er skipuð til fjögurra ára í senn.
Hlutverk íþróttanefndar er að veita mennta- og menningarmálaráðuneytinu ráðgjöf í íþróttamálum. Nefndin gerir tillögur til ráðuneytisins um fjárframlög til íþróttamála í fjárlögum og um úthlutun fjár úr Íþróttasjóði.
Íþróttasjóður auglýsir einu sinni á ári eftir umsóknum, yfirleitt í byrjun október. Framlög úr Íþróttasjóði má veita til:
1. sérstakra verkefna á vegum íþróttafélaga og samtaka þeirra sem miða að því að bæta aðstöðu til
íþróttaiðkunar,
2. útbreiðslu- og fræðsluverkefna,
3. íþróttarannsókna,
4. verkefna skv. 13. gr. íþróttalaga
Formaður íþróttanefndar er Hermann Valsson og varaformaður er Sigríður Jónsdóttir
Skipunartími er frá 11. nóvember 2010 – 30. september 2014

Aðalmenn
- Björg Jakobsdóttir
- Hafþór Guðmundsson
- Ingvar S. Jónsson
Varamenn
- Ann-Helen Odberg
- Einar Kristinn Jónsson
- Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir
- Jóhanna M. Hjartardóttir
- Ólafur Rafnsson
Skipunartími er frá 11. nóvember 2010 – 30. september 2014