Ríkisfjölmiðlar

Ríkisfjölmiðlar

Í byrjun árs 2007 voru samþykkt ný lög um Ríkisútvarpið ohf. Þann 1. apríl tók jafnframt gildi samningur milli RÚV og mennta- og menningarmálaráðuneytisins um útvarpsþjónustu í almannaþágu. Í samningnum eru í fyrsta sinn gerður skriflegur samningur um það hvað telst vera útvarpsþjónusta í almannaþágu og hvað Ríkisútvarpið eigi að leggja áherslu á í dagskrá sinni. Er samningurinn til fimm ára.

Þó að ríkisfjölmiðlar standi nú á tímamótum þá er grunnhugmyndin með útvarpi í almannaþágu enn í fullu gildi. Hún er að allir þegnar landsins eigi að hafa aðgang að vönduðu og fjölbreyttu hljóðvarps- og sjónvarpsefni án tillits til búsetu og efnahags. Ríkisfjölmiðlar gegna jafnframt mikilvægu hlutverki við að treysta sameiginleg gildi í samfélaginu og vera vettvangur lýðræðislegrar umræðu.

 




Tungumál


Flýtival



Þetta vefsvæði byggir á Eplica