Innritun í framhaldsskóla 2011
Forinnritun nemenda í 10. bekk
21. mars til 1. apríl
Forinnritun nemenda í 10. bekk (fæddir 1995 eða síðar). Nemendur fá bréf frá ráðuneytinu með veflykli og leiðbeiningum afhent í grunnskólunum.Það er nauðsynlegt að umsækjendur innriti sig á þessum tíma því það eykur líkur á að hægt sé að verða við óskum umsækjenda um skóla.
Innritun annarra en 10. bekkinga
4. apríl til 31. maí
Innritun eldri nemenda (fæddir 1994 eða fyrr) sem ekki eru nú í framhaldsskóla eða ætla að skipta um skóla. Umsækjendur geta sótt veflykilinn rafrænt http://menntagatt.is/forsida/
Lokainnritun nemenda í 10. bekk
16. maí til 9. júní
Lokafrestur 10. bekkinga til að breyta umsóknum úr forinnritun. Einkunnir umsækjenda verða sendar rafrænt frá grunnskólum til framhaldsskóla þann 11. júní.
Starfsbrautir fyrir fatlaða
Innritun á starfsbrautir er ekki rafræn og henni lauk 28. febrúar síðastliðinn.
Þeir sem ekki hafa þegar sótt um geta þó sent viðkomandi framhaldsskóla skriflega umsókn til 1. apríl næstkomandi.
Stefnt er að afgreiðslu allra umsókna á starfsbrautir fyrir lok apríl.
Nánari upplýsingar eru veittar í mennta- og menningarmálaráðuneytinu og á www.menntagatt.is.
