Vísinda- og tæknistefna
Vísinda- og tækniráð markar stefnu stjórnvalda í vísinda- og tæknimálum. Stefna ráðsins er kynnt í ritinu Byggt á styrkum stoðum - stefna Vísinda- og tækniráðs 2010-2012. Mennta- og menningarmálaráðuneytið framkvæmir þá stefnu í vísinda- og rannsóknarstarfsemi sem heyrir undir verksvið ráðuneytisins.
Mennta- og menningarmálaráðherra skipar vísindanefnd Vísinda- og tækniráðs sem undirbýr umfjöllun ráðsins um vísindastefnu og mótar m.a. úthlutunarstefnu Rannsóknasjóðs.
Umsýsla Vísinda- og tækniráðs og vísindanefndar ráðsins er hjá skrifstofu vísinda- og háskólamála.
