Menningarsamningur - Vestfirðir
Mennta- og menningarmálaráðherra, iðnaðarráðherra og Fjórðungssamband Vestfirðinga fyrir hönd eftirtalinna sveitarfélaga á Vestfjörðum: Árneshrepps, Bolungarvíkurkaupstaðar, Ísafjarðarbæjar, Kaldrananeshrepps, Reykhólahrepps, Strandabyggðar, Súðavíkurhrepps, Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar, gera með sér svofelldan
S A M N I N G
um samstarf ríkis og sveitarfélaga á Vestfjörðum um menningarmál og menningartengda ferðaþjónustu.
1. gr.
Markmið
Með samningnum er styrkveitingum ríkis og sveitarfélaga á Vestfjörðum til menningarstarfs beint í einn farveg til að efla slíkt starf á Vestfjörðum og gera það sem sýnilegast.
Markmið samningsins eru að:
- Efla samstarf á sviði menningarmála á svæðinu.
- Stuðla að nýsköpun og fjölbreytni í menningu og menningartengdri ferðaþjónustu.
- Fjölga atvinnutækifærum á sviði menningar og lista.
- Menningarstarfsemi styðji við ferðaþjónustu.
2. gr.
Menningarráð Vestfjarða
Sveitarfélögin á Vestfjörðum standa að Menningarráði Vestfjarða í samræmi við gildandi samstarfssamning sveitarfélaganna.
Hlutverk Menningarráðs er meðal annars að samræma aðgerðir á sviði menningarmála á Vestfjörðum og standa fyrir öflugu þróunarstarfi í menningarmálum og nýsköpun sem meðal annars styðji við menningartengda ferðaþjónustu.
Í upphafi samningstímans setur Menningarráðið fram stefnu og áætlun um hvernig það hyggst starfa að markmiðum samningsins.
Ráðið úthlutar styrkjum til menningarverkefna á Vestfjörðum samkvæmt úthlutunarreglum sem það setur og birtir, auk þess að hafa eftirlit með framkvæmd verkefna sem það styrkir.
Menningarráð skal skipað fimm fulltrúum og jafnmörgum til vara, á grundvelli samstarfssamnings sveitarfélaganna sem að samningi þessum standa. Við tilnefningar í ráðið skal gæta þess að í því sitji konur og karlar sem þekkja vel til menningarstarfs á landinu sem og á svæðinu.
Menningarráðið ræður menningarfulltrúa a.m.k. í hálft starf og setur honum starfslýsingu, þar sem m.a. komi fram að hann skuli eiga gott samstarf við aðra þá sem starfa að nýsköpun og atvinnuþróun á svæðinu.
Kostnaður við starfsemi ráðsins, m.a. menningarfulltrúa og aðstöðu hans, skal greiddur af því fé sem veitt er til samnings þessa.
3. gr.
Fjármögnun samningsins
Framlag til samningsins er áætlað 34,7 m.kr. á ári og skiptist þannig:
Mennta- og menningarmálaráðuneyti leggur til 19,1 m.kr.
Iðnaðarráðuneyti leggur til 5,7 m.kr.
Sveitarfélögin á Vestfjörðum leggja sameiginlega til að lágmarki sem næst 40% af framlögum ráðuneyta eða sem nemur 9,9 m.kr.
Framangreind framlög ráðuneyta til samningsins eru með fyrirvara um fjárveitingar í fjárlögum hvers árs.
Framlög skulu greidd inn á reikning Menningarráðs Vestfjarða með mánaðarlegum jöfnum greiðslum.
Samningsaðilar skulu vinna að því að auka ráðstöfunarfé Menningarráðs Vestfjarða hvort heldur er með framlögum frá einkaaðilum eða öðrum.
Framlög til stofnstyrkja eru ekki hluti af samningi þessum og skal um slíka styrki semja sérstaklega milli aðila.
4. gr.
Meðferð styrkumsókna
Menningarráð Vestfjarða skal auglýsa opinberlega eftir umsóknum um styrki til verkefna. Ráðið gerir skriflega samninga við styrkhafa. Í þeim skulu koma m.a. fram markmið verkefna, skyldur styrkhafa og hvað verður lagt til grundvallar þegar árangur verkefnis er metinn. Upplýsingar um styrkhafa og verkefni skulu vera aðgengilegar á vefsvæði ráðsins.
5. gr.
Önnur framlög ríkisins til menningarmála.
Samningur þessi kemur ekki í veg fyrir að menningarstofnanir, félög og einstaklingar sem njóta styrkja á grundvelli þessa samnings sæki um styrki í aðra opinbera sjóði á sviði menningar.
Samningur þessi tekur ekki til framlaga ríkisins til byggðasafna, náttúruminjasafna eða listasafna á grundvelli safnalaga nr. 106/2001 né til héraðsskjalasafna á grundvelli laga um Þjóðskjalasafn Íslands nr. 66/1985 með síðari breytingum.
6. gr.
Ársskýrsla og ársreikningur
Menningarráð Vestfjarða skal fyrir lok aprílmánaðar senda aðilum samnings þessa ársreikning fyrir liðið ár ásamt ársskýrslu. Þar skal meðal annars sundurliða framlög ríkis og sveitarfélaga, gera grein fyrir ráðstöfun þeirra og fjalla um árangur með tilliti til markmiða í 1. gr. samningsins.
7. gr.
Ágreiningur, uppsögn og endurskoðun
Telji einhver samningsaðila að aðrir aðilar samnings uppfylli ekki samningsbundnar skyldur sínar getur hann gert skriflega kröfu um að úr því verði bætt innan hóflegs frests. Sé ekki bætt úr annmörkum á framkvæmd samningsins getur samningsaðili sagt samningnum upp með 6 mánaða fyrirvara.
Samningsaðilar geta óskað eftir endurskoðun á einstökum ákvæðum samnings þessa á samningstímabilinu ef sérstakt tilefni gefst.
8. gr.
Gildistími, þróun mælikvarða og árangursmat
Samningur þessi tekur gildi við undirritun og gildir til ársloka 2013.
Samningsaðilar eru sammála um að þegar á árinu 2011 verði hafin vinna við að þróa mælikvarða vegna þeirra markmiða sem sett eru fram í 1. gr. með tilliti til þess að leggja þá ásamt öðru til grundvallar við skiptingu framlaga þegar til endurskoðunar samninga við landshluta kemur á ný.
Á árinu 2013 skulu samningsaðilar skoða forsendur fyrir frekara samstarfi og skal þeirri vinnu lokið fyrir 1. september það ár. Í þeirri vinnu verði lagt til grundvallar samræmt árangursmat allra menningarsamninga sem lokið skal við fyrir 1. ágúst 2013.
Samningsaðilar eru sammála um að gengið verði til samninga um verkefnið sbr. 2. og 3. mgr. við viðurkennda rannsóknarstofnun sem samningsaðilar koma sér saman um. Kostnaðurinn skiptist þannig að menningarráð landshluta greiða samtals 70%, en ráðuneytin 30%.
9. gr.
Lögsaga
Leysi samningsaðilar ekki ágreiningsmál sem rísa kann vegna samnings þessa skal það rekið fyrir Héraðsdómi Vestfjarða.
Samningur þessi er gerður í þremur samhljóða eintökum og heldur hver aðili sínu eintaki.
Ráðherrabústaðnum í Reykjavík
15. apríl 2011
_______________________________ __________________
Katrín Jakobsdóttir Katrín Júlíusdóttir
mennta- og menningarmálaráðherra iðnaðarráðherra
F.h. Fjórðungssambands Vestfirðinga
_____________________________
Albertína Friðbjörg Elíasdóttir
formaður
