
Norrænu ríkin skiptast á um að fara með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni og leiða starfsemina eitt ár í senn. Á árinu 2009 kemur það í hlut Íslendinga að gegna formennsku í nefndinni. Geir H. Haarde kynnti áherslumál Íslendinga á Norðurlandaráðsþingi í Helsinki 28. október.
Yfirskrift áætlunarinnar er Norrænn áttaviti. Í fjórum undirköflum er gerð grein fyrir helstu áherslumálum, en rauður þráður er að stórefla skal rannsóknir og nýsköpun, ekki síst á sviði orku- og umhverfismála. Þá er verndun hafsins eitt af megináherslumálunum, svo og gerð vákorts fyrir Norður-Atlantshafið. Það kemur líka í hlut Íslendinga að fylgja eftir svokallaðri hnattvæðingarstefnu norrænu forsætisráðherranna, sem kynnt var sumarið 2007.
|
Tenglar
|
