Menningarþing 2010
Mennta- og menningarmálaráðuneyti boðaði til menningarþings undir yfirskriftinni Menningarlandið 2010 – Mótun menningarstefnu, á Hótel Loftleiðum, föstudaginn 30. apríl 2010 kl. 12:30-16:45.
Á þinginu var kynnt greining á núverandi menningarstefnu á sviði lista, menningararfs, safna, fjölmiðla og æskulýðs- og íþróttamála. Tilgangur þingsins var að fá viðbrögð við fyrirliggjandi greiningu og að fá fram hugmyndir sem gætu nýst í áframhaldandi vinnu við mótun menningarstefnu til framtíðar.
Einnig var kynnt sóknaráætlun stjórnvalda í menningarmálum og nýleg menningarneyslukönnun.
Ráðstefnustjóri var Ásta Magnúsdóttir, ráðuneytisstjóri mennta- og menningarmálaráðuneyti
Á þinginu var unnið í vinnuhópum með fjóra málaflokka sem eru:
-
listir
-
menningararfur og söfn
-
fjölmiðlar
-
íþrótta- og æskulýðsmál.
Menningarþingið var öllum opið og aðgangur var ókeypis. Þingið var sent út í vefútsendingu á þessum vef.
Niðurstöður menningarþings 2010 (PDF)
Er til menningarstefna á Íslandi? (PDF)
Greining á menningarstefnu íslenska ríkisins eins og hún lítur úr í desember 2009Menningarvog - könnun á menningarneyslu Íslendinga (PDF) Skýrsla
- Menningarvog - Könnun á menningarneyslu Íslendinga (PDF) Glærur
