Evrópski tungumáladagurinn
Evrópuráðið hefur gert 26. september að árlegum Evrópskum tungumáladegi.
Evrópskur tungumáladagur var fyrst haldinn hátíðlegur á Evrópsku tungumálaári 2001 að frumkvæði Evrópuráðsins til að fagna fjölbreytileika tungumála í Evrópu og til að hvetja til tungumálanáms.
|
|
|
|
- Statement on the European Day of Languages by Council of Europe Secretary General Terry Davis
- Dichiarazione del segretario generale del Consiglio d'Europa, Terry Davis, sulla Giornata europea delle lingue
- Europäischer Tag der Sprachen: Lernen, sprechen, zuhören – und sich verstehen
Þemu og markmið Evrópska tungumáladagsins
Skipuleggjendum er frjálst að leggja áherslu á hvaða þema eða markmið sem þeir vilja.
Meginþemun eru þó í reynd fólgin í tilvist Evrópska tungumáladagsins og almennum markmiðum hans, það er:
- Að gera almenningi ljóst hve tungumálanám er mikilvægt;
- Að auka fjölbreytileika þeirra tungumála sem lögð er stund á (auka fjöltyngi);
- Að vekja almenna athygli á tilveru og gildi allra þeirra tungumála sem töluð eru í Evrópu;
- Að viðhalda og stuðla að hinni miklu tungumálafjölbreytni í Evrópu;
-
Að hvetja til símenntunar í tungumálum til að koma til móts við efnahagslegar, félagslegar og menningarlegar breytingar í Evrópu, og sem lið í því styrkja sjálfsmynd einstaklingsins.
Evrópsk tungumálamappa fyrir grunnskóla : European language portfolio for upper secondary level
Evrópsk tungumálamappa fyrir framhaldsskóla : European language portfolio for upper secondary level
Evrópski tungumáladagurinn skipulagður
Hægt er að fagna Evrópska tungumáladeginum í skólum, á vinnustöðum eða á hvaða vettvangi sem er með dagskrá sem ungir jafnt sem aldnir taka þátt í. ÖLL tungumál koma til greina, jafnt þau sem við lærum á unga aldri sem og þau sem við höfum lagt stund á síðar, jafnt evrópsk mál sem önnur, og jafnt opinber sem svæðisbundin tungumál eða táknmál.
Evrópuráðið mun ekki gefa út neinar tilskipanir eða reglur: aðildarríkjum, svæðis- og sveitarstjórnum, frjálsum félagasamtökum, menntastofnunum og, að sjálfsögðu, almennum borgurum eru gefnar frjálsar hendur við skipulagningu dagskrár að eigin vild.
Evrópskir tengiliðir og upplýsingar:
| Language Policy Division DG IV - Council of Europe F - 67075 Strasbourg Cedex Tel +33 388 41 20 00 / 26 25 Fax +33 388 41 27 88 / 27 06 decs-lang@coe.int www.coe.int/lang |
European Centre for Modern Languages Nikolaiplatz 4 A-8020 Graz Tel +43 316 323554 Fax +43 316 323554-4 information@ecml.at www.ecml.at |
Tungumálin – auðlegð Evrópu
Tungumálin eru Evrópu mikil auðlegð: þar eru töluð hundruð tungumála – bæði evrópsk mál sem og tungumál þeirra íbúa sem eiga rætur að rekja til annarra heimsálfa. Evrópumálin eru yfir 200 talsins. Þetta er mikilvæg auðlind sem ber að viðurkenna, nota og meta að verðleikum.
Tungumálanám kemur öllum til góða, jafnt ungum sem öldnum; það er aldrei of seint að leggja stund á tungumálanám og njóta þeirra tækifæra sem slíkt býður upp á.
Með því að læra tungumál annarra þjóða eykst gagnkvæmur skilningur og við sigrumst á menningarmun sem skilur okkur að.
Aldrei hafa gefist eins mörg tækifæri til að starfa eða stunda nám í öðrum Evrópulöndum, en skortur á tungumálakunnáttu hindrar marga í að nýta sér þau.
Hnattvæðing og alþjóðlegur fyrirtækjarekstur gera í auknum mæli kröfur um tungumálakunnáttu sem er forsenda þess að vera góður starfskraftur í eigin heimalandi.
Tungumál opna dyr
Evrópska tungumálaárið 2001 var afar vel heppnað, milljónir manna í 45 löndum tóku virkan þátt í því að halda á lofti fjölbreytni tungumála og kostum þess að geta talað erlend tungumál.
Fólk á öllum aldri var hvatt til að leggja stund á tungumálanám eða meta að verðleikum tungumálakunnáttu sína.
Þeir sem standa að tungumálakennslu voru hvattir til að auðvelda fólki að læra fleiri tungumál og styðja ýmis konar nýbreytni í tengslum við nám og tungumálakennslu.
Hvernig get ég verið þátttakandi?
- Látið upplýsingar berast
Leggið ykkar að mörkum til að sem flestir viti af deginum með því að segja vinum og samstarfsfólki frá honum, kynna hann á vefsíðum, á fundum og í fjölmiðlum. Hægt er að fá góðar hugmyndir hér á vefsíðunni. Sjá texta bæklings hér að ofan. Reynslan af Evrópska tungumáladeginum síðustu ár sýnir að í sameiningu fáum við miklu meira áorkað en ein sér. Með þessum degi gefst tækifæri til að efla áfram það samstarf sem hófst á tungumálaárinu, hvort sem er á heimavelli, á landsvísu eða í alþjóðlegu starfi. - Skipuleggið viðburði
Þeir sem tóku þátt í Evrópska tungumálaárinu skipulögðu fleiri þúsund skemmtilega viðburði á Evrópskum tungumáladegi, allt frá fyrirlestrum til dagskrárliða sem náðu til heilla bæjarfélaga eða borga. Ýmsar góðar hugmyndir sem nýta má hvarvetna og nánari upplýsingar um þennan dag er að finna á vefsíðu Evrópuráðsins: www.coe.int/EDL
Evrópskur tungumáladagur: algengar spurningar:
Hvernig er hægt að stunda "símenntun í tungumálum"?
Símenntun í tungumálum er fólgin í tungumálanámi hvenær sem er á lífsleiðinni, jafnt utan sem innan skólakerfisins. Ávallt má auka færni sína eða leggja stund á nýtt tungumálanám.
Hvernig getum við haldið upp á Evrópskan tungumáladag?
Hægt er að halda upp á tungumáladaginn í skólum, á vinnustöðum eða hvar sem er með dagskrá sem ungir sem aldnir taka þátt í – ÖLL tungumál koma til greina, jafnt þau sem við lærum á unga aldri og þau sem við höfum lagt stund á síðar. Sjá bækling sem menntamálaráðuneytið hefur gefið út. Texti hans er aðgengilegur hér ofar á síðunni.
Hver skipuleggur Evrópska tungumáladaginn?
Hvatt hefur verið til þess að deginum verði fagnað sem víðast og á sem fjölbreyttastan hátt. Engin skipulögð tilmæli eru fyrir hendi á alþjóðavísu, en þó eru tengiliðir í flestum löndum. Upplýsingar um tengiliði er að finna á vefsíðunni.
Verður sérstakt merki tileinkað deginum?
Merki dagsins verður hið sama og notað var á Evrópsku tungumálaári. Hægt er að nálgast það á vefsíðunni eða á neðangreindu heimilisfangi. Skipuleggjendur dagskrárliða mega bæði nota myndina eina sér eða með orðunum "Evrópskur tungumáladagur", eftir því sem þeir vilja, að því gefnu að markmiðið sé í samræmi við tilefni dagsins.
Hvaða aðstoð er í boði?
Á vefsíðu Evrópuráðsins er boðið upp á dæmi, tillögur og gagnagrunn þar sem hægt er að skrá dagskrárliði. Búið hefur verið til veggspjald í rafrænu formi sem yfirvöld og hugsanlegir samstarfsaðilar geta fengið og sniðið eftir þörfum að svæði sínu eða landi. Mismunandi aðstoð er veitt í hverju landi fyrir sig, eftir efnum og ástæðum. Menntamálaráðuneytið hefur í samstarfi við Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum gefið út bækling sem sendur hefur verið öllum skólum og ýmsum hagsmunaaðilum. Einnig má í ráðuneytinu nálgast íslenska útgáfu veggspjalds Evrópuráðsins.
Vefsíða Evrópuráðsins vegna Evrópska tungumáladagsins: www.coe.int/EDL
Upplýsingar:
Language Policy Division
DG IV - Council of Europe
F - 67075 Strasbourg Cedex
Tel +33 388 41 20 00 / 26 25
Fax +33 388 41 27 88 / 27 06
European Centre for Modern Languages (Tungumálamiðstöðin í Graz)
Nikolaiplatz 4
A-8020 Graz
Tel +43 316 323554
Fax +43 316 323554-4
Nánari upplýsingar um Evrópskan tungumáladag á Íslandi 2006 veita Erna Árnadóttir og María Gunnlaugsdóttir í menntamálaráðuneytinu.
Gagnlegar vefsíður sem gætu nýst við framkvæmd tungumáladagsins
(Unnið af Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum)
- Association for Language Learning (samtök breskra tungumálakennara)
http://www.languagelearn.co.uk/edl.htm
- BBC- Örkennsla fyrir ferðamenn á ýmsum tungumálum
http://www.bbc.co.uk/languages/other/quickfix/
- BBC-tungumálakennsla og upplýsingar
http://www.bbc.co.uk/languages/
- BBC- frönskupróf
http://www.bbc.co.uk/languages/french/gauge/
- BBC- þýskupróf
http://www.bbc.co.uk/languages/german/gauge/
- BBC-ítölskupróf
http://www.bbc.co.uk/languages/german/gauge/
- BBC- spænskupróf
http://www.bbc.co.uk/languages/spanish/gauge/
- Evrópuráðið- upplýsingar um Evrópska tungumálaárið
http://www.coe.int/DefaultEN.asp
- Centre for Information on Language Teaching and Research (CILT)
http://www.cilt.org.uk
- síða CILT um Evrópska tungumáladaginn
http://www.cilt.org.uk/edl/thingstodo.htm
- Tungumálamiðstöðin í Graz
http://www.ecml.at
- Hvaða tungumál talar fræga fólkið?
http://www.cilt.org.uk/edl/linguists.htm
- Goethe Institut- Dagur í Þýskalandi
http://www.goethe.de/z/50/alltag/deindex.htm
- Euroquiz
http://www.languagelearn.co.uk/euroquiz.htm
- Bresk tungumálasíða fyrir ungt fólk
http://www.allo-languages.org.uk
- Association for Language Learning – Spænskupróf
http://www.all-languages.org.uk/publications_resources_classroom_spanish_readingks4.asp
- Alþjóðlegt vinanet fyrir börn og unglinga
http://www.kidlink.dk/
- Þýskuæfingar á netinu
http://webgerman.com/german/forms/webforms.htm
- Frönskunám á netinu
http://www.frenchlesson.org/index.htm
- Litirnir á ýmsum tungumálum (fyrir yngstu börnin)
http://fr.coloriage.com/
