
Norrænu ríkin skiptast á um að fara með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni og leiða starfsemina eitt ár í senn. Á árinu 2009 kemur það í hlut Íslendinga að gegna formennsku í nefndinni. Geir H. Haarde kynnti áherslumál Íslendinga á Norðurlandaráðsþingi í Helsinki 28. október.
Yfirskrift áætlunarinnar er Norrænn áttaviti. Í fjórum undirköflum er gerð grein fyrir helstu áherslumálum, en rauður þráður er að stórefla skal rannsóknir og nýsköpun, ekki síst á sviði orku- og umhverfismála. Þá er verndun hafsins eitt af megináherslumálunum, svo og gerð vákorts fyrir Norður-Atlantshafið. Það kemur líka í hlut Íslendinga að fylgja eftir svokallaðri hnattvæðingarstefnu norrænu forsætisráðherranna, sem kynnt var sumarið 2007.
|
|
|
|
| Atburðir 2009 | |
|---|---|
| 26.-27. mars |
Nordiska handikapps politiska rådet |
| 27.-28. mars | Menningarmálanefnd Nordiska handikapps politiska rådet |
| 1. apríl | Vinnuhópur um lagfæringar á norrænu menningarsamstarfi á vegum MR-K |
| 1. apríl | Vinnuhópur um hnattvæðingarmál á vegum MRK |
| 2. apríl | Norræn embættismannafundur - EKK |
| 16. 17. apríl | Ráðstefna um gæðamál á háskólastigi - Quality and Development in Nordic Higher Education Dagskrá (PDF) |
| 22. apríl | Listahátíðin List án landamæra með norrænu ívafi hefst |
| 30. apríl -1. maí | Norrænt málþing um verkefnið Skólahreysti |
| 6. maí | Norrænn menningarmálaráðherrafundur - MRK |
| 8. maí | Finnsk-íslenski menningarsjóðurinn |
|
11.-12. maí |
Menningarlandið, ráðstefna í Stykkishólmi |
| 18.-20. maí | Fundur NORDBUK |
| 27. - 29. maí | Ráðherrafundur Evrópuráðsins um fjölmiðlamál |
| 11. - 12. júní | Fundur Krea Nord |
| 18. - 19. júní | Fundur norrænna embættismanna um æskulýðsmál |
| 19. september | Ráðstefna um keltnesk áhrif á norræna menningu |
| 23. september | Ráðstefna um hugmyndafræði Listar án landamæra |
| 23. september | Norrænn embættismannafundur - EKK |
|
2.- 4. október |
Ráðstefna um lítil málsvæði |
