Framhaldsfræðsla

Framhaldsfræðsla

Mennta- og menningarmálaráðuneytið vill auðvelda fólki aðgengi að námi og auka þátttöku fullorðinna í námi. Mikilvægt er að fullorðnir sem ekki hafa lokið formlegu námi á framhaldsskólastigi eigi kost á öðru tækifæri til náms og fái jafnframt fyrra nám, námskeið og hvers kyns lífs- og starfsreynslu metna til styttingar á námi til fullra námsloka.

Ráðuneytið telur mikilvægt að fólk tileinki sér þá hugsun að menntun er æviverk sem í reynd stendur yfir frá vöggu til grafar. Nám fer ekki eingöngu fram í skólastofunni, heldur einnig á vinnustað, í félagsstörfum, í hversdagslífinu og hvarvetna þar sem fólk dregur lærdóm af nýrri reynslu.




Senda grein



Tungumál


Flýtival



Þetta vefsvæði byggir á Eplica