Framhaldsskólar

Framhaldsskólar

Þeir sem lokið hafa grunnskólanámi, hafa hlotið jafngilda undirstöðumenntun eða hafa náð 16 ára aldri eiga rétt á að hefja nám í framhaldsskóla. Þeir eiga jafnframt rétt á því að stunda nám í framhaldsskóla til 18 ára aldurs vegna fræðsluskyldu við ólögráða nemendur.

Allir nemendur eiga rétt á námi við sitt hæfi í samræmi við óskir og hæfni. Framhaldsskólar bjóða nú upp á:

  • Um það bil 100 námsbrautir,
  • þar af 87 starfsnámsbrautir.
  • Námsbrautirnar eru ólíkar að lengd og inntaki en námslengd getur verið frá einni til tíu anna.
  • Af öllum námsbrautum eru leiðir til frekara náms.

Innritun í framhaldsskóla er tvisvar á ári, í nóvember fyrir vorönn, í júní fyrir haustönn.

Allt er þetta miðað við skólana eins og þeir eru núna. Þetta þarf hins vegar að endurskoða fyrir hverja innritun. Lagaklausan um innritunina er tekin upp en stytt og orðið fræðsluskylda sett inn.




Tungumál


Flýtival



Þetta vefsvæði byggir á Eplica