Menntamál

Menntamál


Leikskólar

Leikskólinn er fyrsta skólastigið, er ætlaður börnum undir skólaskyldualdri. Leikskóladvöl er ætluð börnum undir skólaskyldualdri og er frjálst val foreldra.

Grunnskólar

Öllum börnum og unglingum á aldrinum 6-16 ára er skylt að sækja 10 ára grunnskóla. Skólaárið er 9 mánuðir að lágmarki.

Framhaldsskólar

Þeir sem lokið hafa grunnskólanámi, hafa hlotið jafngilda undirstöðumenntun eða hafa náð 16 ára aldri eiga rétt á að hefja nám í framhaldsskóla. Þeir eiga jafnframt rétt á því að stunda nám í framhaldsskóla til 18 ára aldurs vegna fræðsluskyldu við ólögráða nemendur ef þeir brjóta ekki skólareglur.

Háskólar

Nemendur sem hefja nám í háskóla skulu hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegu námi. Átta skólar bjóða upp á menntun til háskólagráðu. Nánari upplýsingar eru að finna undir vísinda- og háskólamál.

Fullorðinsfræðsla

Ráðuneytið vill auðvelda fólki aðgengi að námi og auka þátttöku fullorðinna í námi. Mikilvægt er að fullorðnir sem ekki hafa lokið formlegu námi á framhaldsskólastigi eigi kost á öðru tækifæri til náms og fái jafnframt fyrra nám, námskeið og hvers kyns lífs- og starfsreynslu metna til styttingar á námi til fullra námsloka.

Mat og úttektir

Starfandi er innan ráðuneytisins mats- og greiningarsvið sem hefur umsjón með því að gerðar séu reglulega úttektir á öllum skólastigunum.

Námskrár

Ráðuneytið sér um að gerðar séu námskrár fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla.




Tungumál


Flýtival



Þetta vefsvæði byggir á Eplica